150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[16:59]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég ætla að vitna í eina umsögn í viðbót. Hún kemur frá Skipulagsstofnun og er frá 5. júní sl. Við erum að tala um stofnun opinbers hlutafélags ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Í umsögn Skipulagsstofnunar segir, með leyfi forseta:

„2. gr. Tilgangur og markmið félagsins.

Í inngangi greinargerðar með frumvarpinu er vísað til samgöngusáttmála ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2019 sem hafi að markmiði að stuðla að bættum lífsgæðum á höfuðborgarsvæðinu með uppbyggingu skilvirkra, hagkvæmra, öruggra og umhverfisvænna samgönguinnviða. Í markmiðsákvæði frumvarpsins er hins vegar ekki vikið að framangreindu markmiði um að stuðla að bættum lífsgæðum á höfuðborgarsvæðinu. Skipulagsstofnun telur um að ræða grundvallarforsendu fyrir efni frumvarpsins sem ástæða sé til að komi fram í markmiðum frumvarpsins.

Í inngangi greinargerðar með frumvarpinu er jafnframt vísað til greininga sem unnar hafa verið við gerð svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins sem sýnt hafa fram á þörf á að breyta ferðamátum á höfuðborgarsvæðinu og auka hlut gangandi, hjólandi og þeirra sem nýta almenningssamgöngur til að draga úr töfum í umferð og auka lífsgæði íbúa. Þá er óumdeilt að stórauka þarf hlutdeild virkra ferðamáta og almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu til að ná megi markmiði stjórnvalda um sjálfbært, kolefnishlutlaust borgarsamfélag. Hins vegar segir í markmiðsákvæði frumvarpsins að stuðla skuli að „jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta“. Skipulagsstofnun telur þetta orðalag ekki endurspegla það sem rætt er að framan. Markmiðum frumvarpsins verður að mati Skipulagsstofnunar ekki náð með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta. Hvort sem horft er til loftslagsmarkmiða eða markmiða um lífsgæði, skilvirkni, hagkvæmni eða öryggi, er ljóst að breyta þarf áherslum í uppbyggingu samgönguinnviða frá því sem verið hefur og setja vistvæna ferðamáta í forgang.

Í ljósi framangreinds leggur Skipulagsstofnun til að a-liður 2. gr. frumvarpsins hljóði svo:

„Að stuðla að bættum lífsgæðum á höfuðborgarsvæðinu með skilvirkum, hagkvæmum, öruggum og umhverfisvænum samgöngum með áherslu á breyttar ferðavenjur, almenningssamgöngur og virka ferðamáta.““

Umsögnin er frá 5. júní og ég verð að viðurkenna að ég veit ekki hvort þetta hefur verið tekið til greina en þetta segir mér a.m.k., eins og ég hef rætt hér áður, að ekki var gefinn nógu mikill tími til að skoða þessa liði í frumvarpinu áður en það var lagt fram sem lýsir því enn og aftur að þetta er allt gert í tímahraki. Ég verð bara að segja í lok þessarar ræðu að það er alltaf að verða mér ljósara og ljósara eftir því sem dagarnir líða að fólk í þjóðfélaginu er að vakna upp við það að þetta mál er algjörlega ófært til lagasetningar og þarf að vinna miklu betur. Það er mikill ábyrgðarhluti að það sé komið þetta langt við lok þings, við erum komin inn í sumar og þetta mál er algerlega (Forseti hringir.) óbært til þess að verða að lögum.

Hæstv. forseti. Ég óska eftir því að verða settur aftur á mælendaskrá.