heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Herra forseti. Í síðustu ræðu gerði ég grein fyrir pólitísku eðli þessa máls og því að það snúist í raun um innleiðingu á sósíalískri stefnu, sósíalískri samfélagsstýringu, og vísaði til Austur-Þýskalands. Þetta frumvarp hefði fallið mjög vel að stjórnkerfinu þar og áherslum þess. Ég nefndi líka hvernig slík nálgun, sósíalíska stefnan, skaðar á endanum alla og hvernig þetta mun gera slíkt hið sama. Í stað þess að vinna áfram, eins og undanfarna áratugi, að því að lyfta fólki upp, bæta kjör þess, gera fleirum kleift að eiga bíl, eiga íbúð sem rúmar fjölskylduna, er ætlunin að ýta þessu í hina áttina, gera fólki ókleift að eignast fjölskyldubíl og neyða það í raun til að nýta þann samgöngumáta sem lagt er upp með hér, borgarlínuna, og til að búa í minni íbúðum og án bílastæða.
Þetta gengur þvert á stefnuna sem var rekin í Reykjavíkurborg um áratugaskeið. Ég benti einmitt á kaldhæðnina sem felst í því að Sjálfstæðisflokkurinn sé að gera þetta mögulegt og fjármagna þessa grundvallarbreytingu á því hvernig stjórnvöld koma fram við íbúana og nálgast tækifæri þeirra til að öðlast aukið frelsi. Þegar ég segi „nálgast“ á ég í raun við að með þessu er verið að hamla möguleikum fólks til að vinna sig upp hvað varðar tekjur og frelsi. Það er verið að setja fólk meira í sama kassa og á sömu línu, eins og þeir stunduðu í Austur-Þýskalandi.
Nú ætla ég að halda áfram að rekja frumvarpið í framhaldi af skýringum mínum á pólitísku eðli málsins því að ég taldi mikilvægt að byrja á þeim pólitísku skýringum til að geta sett þær í samhengi við innihald frumvarpsins. Ég var kominn að lið 2 í greinargerð. Hann ber yfirskriftina Tilefni lagasetningar og þar segir, með leyfi forseta:
„Almennt getur ríkissjóður aukið fjárfestingar sínar til að ná tveimur efnahagslegum markmiðum.“
Eitt gleymdi ég að nefna, herra forseti. Í þessum kafla er verið að reyna að nota Covid-ástandið sem rök fyrir því að fara út í þetta, en þarna segir m.a., með leyfi forseta:
„Almennt getur ríkissjóður aukið fjárfestingar sínar til að ná tveimur efnahagslegum markmiðum. Annars vegar til að styðja við eftirspurn með áherslu á framkvæmdir þar sem innlendir framleiðsluþættir eru nýttir. Hins vegar til að stuðla að aukinni framleiðni með áherslu á efnahagslega arðbær verkefni.“
Aukinni framleiðni með áherslu á efnahagslega arðbær verkefni — dettur einhverjum í hug að halda því fram að þetta borgarlínuverkefni feli í sér aukna framleiðni með áherslu á efnahagslega arðbært verkefni? Við höfum nú þegar heyrt að til standi að reka tvöfalt strætisvagnakerfi þegar borgarlínan kemur til sögunnar. Kostnaður við gamla strætisvagnakerfið mun aukast um a.m.k. 2 milljarða kr. á ári og ekki hefur nú rekstur þess verið efnahagslega arðbær hina síðari áratugi, ef nokkurn tímann. Raunar standa strætisvagnarnir einungis undir sér að þriðjungi. Tveir þriðju eru greiddir af skattgreiðendum með styrk. Nú stendur til að auka enn kostnaðinn við þetta kerfi og bæta svo nýju kerfi ofan á það, borgarlínu, sem, eins og við sjáum í svo mörgum borgum erlendis þar sem þessi leið hefur verið prófuð, mun reynast gríðarlega dýr, ekki aðeins í framkvæmd heldur einnig í rekstri. Samt leyfa menn sér (Forseti hringir.) að skrifa hér að áhersla sé lögð á efnahagslega arðbær verkefni. (Forseti hringir.) Herra forseti. Ég náði ekki einu sinni að komast í gegnum 2. lið og bið hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.