heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Herra forseti. Við erum að fjalla um heimild til að stofna opinbert hlutafélag sem á að hafa með höndum tiltekin verkefni við uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Stærsta einstaka verkefnið er hin svokallaða borgarlína. Ekki er alveg ljóst hvað hún er en þó virðist gert ráð fyrir því að þarna verði strætisvagnar af stærri gerðinni, talað hefur verið um tvo samtengda. Það eru þá risaskrímsli sem velkjast um höfuðborgina og íbúðahverfi þar á meðal.
Það liggur ekkert fyrir hvað verkefnið á í raun og veru að kosta. Hvar er haldbær kostnaðaráætlun? Það hefur verið talað um að þetta verkefni hafi verið metið á 70 milljarða árið 2018. Svo var það endurmetið 2019 og hafði hækkað á milli ára um 14,3% og var komið upp í 80 milljarða. Hærri tölur hafa heyrst, eins og 120 milljarðar. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, Eyþór Laxdal Arnalds, ritaði grein í Morgunblaðið fyrr í þessari viku og talaði um að þessa 70–80 milljarða þyrfti að margfalda með pí, þ.e. þrefalda fjárhæðina, og þá erum við komin yfir 200 milljarða. Enginn veit hvað þetta mun kosta.
Það er ljóst að þetta er risastórt verkefni. Það sem er ekki ljóst er hversu margir íbúar munu vilja nýta sér þetta. Tilraunaverkefni hefur staðið yfir og 9 milljörðum varið til þess á ári. Hlutfall íbúa sem hefur notað almenningssamgöngur var við upphaf 4% og eftir níu ár og 9 milljarða er það enn 4% þannig að þetta er óljóst. Það liggur fyrir og er beinlínis viðurkennt af forsvarsmönnum og formælendum borgarlínu að engin rekstraráætlun er til. Samt erum við að tala um að verja í þetta verkefni 55 milljörðum kr. af opinberu fé. Það er afar sérkennilegt.
Herra forseti. Ég var að fjalla í minni síðustu ræðu um mjög athyglisverða umsögn Alþýðusambands Íslands þar sem sambandið lýsir því hversu mikilvægt sé að fara í innviðafjárfestingar á næstu árum. ASÍ hefur fjallað um þetta í stefnu sinni og er það að finna á vefsíðu Alþýðusambandsins. Sambandið bendir á að veruleg uppsöfnuð fjárfestingarþörf sé fyrir hendi en hins vegar er þung gagnrýni á fjármögnun þessa verkefnis í umsögn þess. Þar segir að Alþýðusambandið telji fullt tilefni til að gagnrýna að nauðsynlegar fjárfestingar í innviðum séu háðar og tengdar sölu á eignum ríkisins með þróun Keldnalands og hugsanlegri sölu á Íslandsbanka og innheimtu flýtigjalda. Þarna hefði líka mátt segja „flýti- og umferðargjalda“ því að um þau er rætt í þessu frumvarpi. Í umsögninni segir að Alþýðusambandið telji að nauðsynleg fjárfesting í innviðum og viðhald á innviðum eigi ekki að vera fjármagnað með sölu eigna hins opinbera heldur sé hluti af eðlilegum rekstri samfélagsins. Í framhaldi af því segir í umsögn Alþýðusambandsins að við núverandi efnahagsaðstæður hafi ríkið getu til að styðja við aukna fjárfestingu án þess að hún sé háð sölu eigna eða að byrðum sé velt á almenning í formi veggjalda. Ég minni á það, herra forseti, að í frumvarpinu er gert ráð fyrir að lagðar verði auknar álögur á höfuðborgarbúa og aðra sem fara þar um upp á 60 milljarða á tímabilinu sem um ræðir. Í umsögninni segir að ríkið hafi mun skilvirkari leiðir til að fjármagna slíkar framkvæmdir til framtíðar, t.d. í gegnum réttlátt skattkerfi þar sem byrðunum er síður velt á hina tekjulægri og undir það er (Forseti hringir.) full ástæða til að taka, herra forseti.