heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Herra forseti. Ég hef verið að fara yfir einstakar greinar frumvarpsins og hef lagt áherslu á að það er margt sem þarf að betrumbæta í því um þetta hlutafélag sveitarfélaganna og ríkissjóðs um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Hér er um risastórt mál að ræða og verulegar fjárhagslegar skuldbindingar fyrir ríkissjóð og fullt tilefni til að fara mjög vandlega yfir þetta. Auk þess hugnast okkur í Miðflokknum ekki borgarlínuverkefnið og höfum gert grein fyrir því.
Ég var búinn að fara yfir 6., 7., 8. og 9. gr. frumvarpsins og tel nauðsynlegt að þær verði bættar og settir fleiri varnaglar varðandi fjárskuldbindingar ríkissjóðs. Ég vil aðeins ljúka umfjöllun minni um 9. gr., en yfirskrift hennar er: Slit félagsins. Þar segir:
„Félaginu skal slitið þegar það hefur lokið verkefnum að fullu og þegar fullnaðaruppgjör hefur farið fram og öllum eignum félagsins ráðstafað.“
Í greinargerð um einstakar greinar í frumvarpinu er ekki mikið fjallað um þessa grein en hún er mjög mikilvæg. Í greinargerðinni segir um 9. gr., með leyfi forseta:
„Í greininni er kveðið á um að félaginu skuli slitið þegar það hefur lokið verkefnum að fullu og þegar fullnaðaruppgjör hefur farið fram og öllum eignum þess ráðstafað.“ — Eignirnar eru náttúrlega umferðarmannvirkin í sveitarfélögum og þarf að ráðstafa þeim til viðkomandi sveitarfélaga þegar félaginu verður slitið. — „Gert er ráð fyrir að framkvæmdir á vegum félagsins nái yfir 15 ára tímabil. Ljóst er að félagið mun að öllum líkindum starfa lengur í tengslum við frágang á einstökum verkefnum og vegna uppgjörs við hluthafa.“
Hér vil ég benda sérstaklega á þessa setningu, vegna uppgjörs við hluthafa. En með hvaða hætti fer það uppgjör fram? Það segir ekkert um það í frumvarpinu, ekki neitt. Félagið á að standa straum af mjög kostnaðarsömum umferðarmannvirkjum og svo kemur að því að afhenda þau, þann hluta sem er í viðkomandi sveitarfélagi, segjum að það eigi að afhenda Kópavogsbæ þau mannvirki sem eru innan bæjarlands Kópavogs. Þá er spurningin hvert uppgjörsverðið verður þegar á að afhenda sveitarfélaginu þau mannvirki. Um það er ekkert fjallað í frumvarpinu. Það er mikill og verulegur galli. Ég hefði talið að það ætti að bæta við 9. gr. nýjum málslið sem gæti hljóðað einhvern veginn á þann veg að eignum skuli úthlutað úr félaginu til eiganda á heildarkostnaðarverði. Það hefur mjög mikið að segja. Það er mjög einkennilegt, herra forseti, í svo viðamiklu samkomulagi, sem varðar svo miklar fjárhagslegar skuldbindingar, að ekkert skuli vera minnst á þetta, ekki neitt. Þannig mætti benda á fleiri atriði, eins og ég hef nefnt í 6., 7. og 8. gr. sem ég hef farið yfir.
Það er alveg ljóst að hér hafa menn verið allt of fljótfærir og maður skilur ekki alveg hver hugsunin er á bak við. Er hún einfaldlega sú að ríkissjóður eigi bara, þegar upp er staðið, að greiða meginpartinn af þessu öllu saman? Ríkissjóður á að eiga 75% í þessu félagi en sveitarfélögin 25%. Það er algerlega nauðsynlegt að tryggja að hagsmunir ríkisins séu vel ígrundaðir af því þeir eru jú 75% af þessu félagi sem kemur til með að sýsla með á annað hundrað milljarða kr. Skuldbindingin fyrir hönd ríkissjóðs er 75%. Það er talað um það í þessum samgöngusáttmála (Forseti hringir.) að ríkissjóður greiði um 105 milljarða af 120.(Forseti hringir.)
Herra forseti. Ég bið þig að setja mig aftur á mælendaskrá þar sem ég ætla að fara nánar yfir þetta í næstu ræðu.