150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[18:07]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég hef verið dálítið upptekinn í undanförnum ræðum mínum, sem hafa samt verið allt of stuttar, af fyrsta áfanga borgarlínu, leguhálsi o.s.frv. Það vill svo til að 13. desember 2019 var skipað 12 manna hönnunarteymi fyrir borgarlínu og verkefnisstjóri borgarlínunnar, Hrafnkell Ásólfur Proppé, sagði, með leyfi forseta: „Það er einkar ánægjulegt að ná þessu hönnunarteymi saman, allt úrvals fólk og tilbúið í verkefnið.“ Ég minnist á þetta vegna þess að ég er svolítið spenntur í dag, herra forseti, vegna þess að það stóð til að kynna sætin í biðstöðvar borgarlínu. Ég er ekki farinn að sjá þetta enn þá og veit ekki hvort það átti að gerast á blaðamannafundi eða hvernig það átti að vera en ég finn mig nokkuð spenntan út af því.

Mig langaði aðeins til að fara aftur ofan í þetta sem ég hef rætt áður, þ.e. legu borgarlínunnar, fyrsta áfanga. Það vill svo til að svo komst ég yfir annan áfanga sem fer alveg langleiðina upp í Mosfellsbæ og liggur að Vatnsmýri. En síðan kemur hlykkur á, bæði upp í Breiðholt, og af fyrsta áfanga sem ég lýsti áðan var ég eiginlega kominn að Landspítalanum, en þar grípur annar áfangi inn í og fer sem sagt frá Vatnsmýri og langleiðina upp í Mosfellsbæ en kvíslast nokkuð og fer þess vegna ein kvísl í Breiðholtið og önnur kvísl suður Skógarveg frá Kringlunni og suður í Smáralind.

Þegar ég er búinn að horfa á þetta, frú forseti, þá skil ég ekki af hverju menn setja ekki bara strætó á þessar leiðir, þann sem við erum að nota í dag. Ég hygg að það sé þannig, ef þú ert með strætisvagn eins og við erum með, þessa stóru sem taka allt að 80 farþega ef staðið er í þeim, ég hef reyndar aldrei séð svo fullan strætó í Reykjavík, herra forseti, að nú á sem sagt að tvöfalda þetta framboð í hverjum vagni í borgarlínunni. Nú lítur þetta leiðakerfi við fyrstu sýn dável út en ég spyr mig hvort það sé ekki rétt fyrst menn eru að breyta leiðakerfinu að setja bara góða gamla strætisvagninn á þessar leiðir og fjölga ferðum og bæta þar með þjónustu í stað þess að eyða öllum þessum peningum í eitthvað sem við vitum ekki alveg hvernig kemur út. Þetta segi ég sem gamall vinur ríkissjóðs og gamall umsjónarmaður með hluta hans. Ég vil ríkissjóði náttúrlega allt hið besta og þess vegna finnst mér ótrúlegt að menn skuli þessa alls búnir, t.d. hér í þessu húsi, að ég tali nú ekki um í Sjálfstæðisflokknum og hæstv. fjármálaráðherra og hans fólk, að láta af hendi rakna 50 milljarða í þetta verkefni bara sisvona.

Ég ræddi það einmitt í ræðu áðan hvernig við Íslendingar höfum verið óheppnir þegar stór verkefni eru á leiðinni, að áætlanir hafa ekki staðist af því að menn hafi flýtt sér um of. En það er reyndar eitt sem ég vildi segja líka, vegna þess að ég minntist á það af hverju ekki væri hægt að setja bara gamla góða strætó á þessar leiðir, að einn farsælasti forstjóri á Íslandi, sem er núna forstjóri Kemi, Hermann Guðmundsson, hefur bent á það í nýlegri grein að borgarlínan sé lausn 20. aldarinnar en ekki 21. aldarinnar. Hann hefur bent á það að vestur í Ameríku, í þröngum borgum eins og hér er, eru menn jafnvel farnir að nota sjálfkeyrandi vagna á stuttum leiðum sem tengjast svo venjubundnum strætisvögnum til þess að bæta þjónustu.

Herra forseti. Ég skil eiginlega ekki af hverju menn kanna ekki þessa möguleika í staðinn fyrir að hanga eins og hundar á roði (Forseti hringir.) á einhverju sem þeir hafa séð í Kaupmannahöfn eða París.

Ég bið forseta, af því að ég get ekki klárað það sem ég ætlaði að ræða, að setja mig aftur á mælendaskrá.