150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[18:13]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Við ræðum frumvarp til laga um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Það höfum við rætt í dag og hér kennir ýmissa grasa. Ég fór yfir nefndarálit minni hluta fjárlaganefndar í fyrri ræðu, álit hv. þm. Birgis Þórarinssonar. Hann tók undir eitt og annað með meiri hluta fjárlaganefndar í sambandi við ljósastýringu og stofnbrautir sem og greiðari leið þeirra sem hjóla, ganga og fara öðruvísi um en á bíl. Í greinargerð með frumvarpinu er nefnt að íbúum á höfuðborgarsvæðinu hafi fjölgað og auðvitað hefur umferðin aukist talsvert undanfarin ár. En það virðist algerlega litið fram hjá því að ástæða þess að umferðin er svo teppt eins og við þekkjum öll er einnig vegna þessa framkvæmdastopps. Tilraun var gerð til þess að laða fólk í strætó með því að leggja aukið fjármagn inn í Strætó, en það hefur ekki skilað árangri. Það er tiltekið að ef ferðavenjur verða áfram óbreyttar muni það skerða lífsgæði íbúa og draga úr skilvirkni svæðisins. Því er hins vegar haldið fram að ef fólk breytir ferðavenjum sínum, hjóli eða fari í strætó eða borgarlínu, verði tafirnar minni og þar með verði lífsgæði íbúa betri.

Mér finnst nú kannski ákveðin forræðishyggja í að halda því fram að lífsgæðin verði betri vegna þess að það getur vel verið að fólk kjósi bara ekkert að nýta sér almenningssamgöngur. Það er allt í lagi að velta því aðeins fyrir sér.

Þetta byggir allt á samkomulagi sem núna er kallað sáttmáli sem íslenska ríkið gerði við Reykjavíkurborg, Garðabæ, Hafnarfjörð, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes, sem eru sveitarfélögin í kring. Þetta samkomulag var gert fyrir ári síðan, í september 2019, og er samkomulag um uppbyggingu samgönguinnviða, almenningssamgangna. Það eru forsætisráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra sem kvitta undir þetta. Nú hefur þingmönnum orðið tíðrætt um lausnargjaldið sem borgarlínan er og til þess eigi að fórna Keldnalandinu og merkilegt að uppgötva að það átti að fara í þá vegferð án þess að ræða við kóng né prest eins og þar stendur.

Tilefni þessarar lagasetningar er að uppfylla skuldbindingar um þennan samning og stofna þetta félag sem á að halda utan um borgarlínu. Það er töluvert undir. Enn og aftur verður að minna á að forgangsröðun fjármuna skiptir öllu máli. Það er merkilegt að hér er kafli eða nokkrar línur um samráð sem mér finnst eiginlega segja svolítið mikið og ég ætla að fá að lesa alla vega síðustu línurnar:

„Sökum þess hversu áríðandi þótti að leggja frumvarpið fram á Alþingi var ekki haft samráð um drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda.“

Þetta segir nú allt um asann á þessu máli. — Ég bið hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.