150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[18:18]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Herra forseti. Í 4. gr. frumvarpsins um þetta opinbera hlutafélag um samgönguframkvæmdir kemur fram, með leyfi forseta:

„Sá ráðherra er fer með eignir ríkisins skal fara með hlut ríkisins í félaginu og framkvæmd laga þessara. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fara með eigendaumboð sveitarfélaganna í félaginu.“

Þetta er svo nánar útskýrt í greinargerðinni þar sem farið er í nánari útskýringar á hverri lagagrein fyrir sig. Þar er m.a. farið yfir fjármögnunina, skiptinguna á milli ríkis og sveitarfélaga. Ég velti því fyrir mér þegar ég las þetta fyrst, hvort það væri ekki örugglega þannig að félagið sem slíkt sé vistað hjá fjármálaráðherra, þ.e. í fjármálaráðuneytinu. Ég tel mjög mikilvægt að það sé þar því ríkissjóður hefur svo stóran hlut sem raun ber vitni, eða plön eru um. Það væri í mínum huga ótækt að félagið yrði vistað hjá sveitarfélögunum eða borginni eða í einhverjum félagsskap slíkum því að það er mjög mikilvægt að fjármálaráðherra á hverjum tíma hafi sérstaklega góða yfirsýn yfir verkefnið því að það mun væntanlega fara fram úr áætlunum og því er mikilvægt að ráðherra sé með puttann á púlsinum á hverjum tíma.

Hér hefur aðeins verið gagnrýnt að menn hafi ekki gert ráð fyrir því að fjármálaráðherra eða ríkið gæti tekið meirihlutaákvarðanir í stjórninni. Reyndar verður að segjast að það er alveg stórfurðulegt að ekki hafi verið skrifað inn í frumvarpið til að byrja með og mikilvægt að það sé leiðrétt. Formaður hefði átt að hafa tvöfalt vægi sem gerði það að verkum að í sex manna stjórn væri formaðurinn sjöunda atkvæðið í rauninni. Í mínum huga hefði átt að ganga lengra. Í ljósi þess hve ábyrgðin er mikil hjá ríkisvaldinu hefðu a.m.k. fjórir af sex átt að vera frá ríkisvaldinu. Sveitarfélögin þurfa hvort sem er að koma sér saman um skiptingu stjórnarmanna og ábyrgð þeirra er miklu minni en ríkisins á framkvæmdinni, þó svo að ég fullyrði að það séu öfug hlutföll miðað við þá sem vilja í rauninni þessa framkvæmd hjá ríkisstjórnarflokkunum, þeir elta þetta mál bara. Ég held að það hefði átt að vera þannig að a.m.k. 75% stjórnarmanna eða atkvæða í stjórninni væru hjá ríkisvaldinu en vitanlega er hægt að útfæra það.

Ég hef velt fyrir mér hérna í umfjöllun um einstakar greinar nokkrum hlutum og farið m.a. yfir þá miklu óvissu sem er í kringum málið. Ég fjallaði í síðustu ræðu um að þetta væri eins og óvissuferð sem menn legðu af stað í. Ég er enn þá sannfærður um að svo sé. Svo maður gæti nú sanngirni er vitanlega eðlilegt að gera ráð fyrir einhvers konar vikmörkum í kostnaði en það liggur bara ekkert fyrir. Það er engin tala. Ekkert sem hönd er á festandi í þeim upplýsingum sem hér eru lagðar fyrir okkur um hvað menn áætla að þetta gæti farið mikið fram úr og hvernig fer með það, svo ég staglist nú enn á því.

Ég vil líka nota tækifærið þessar síðustu sekúndur sem ég hef af þessari ræðu til að undirstrika að tilraunir til að auka notkun almenningssamgangna hafa brugðist algerlega þrátt fyrir milljarðaaustur inn í það verkefni og nú á að reyna að fara þá leið að neyða fólk til að leggja einkabílnum og nota borgarlínu. Maður veltir fyrir sér hvers vegna fremstir í flokki fari áður boðberar frelsis og sjálfsákvörðunartöku einstaklinganna, Sjálfstæðisflokkurinn, að þeir skuli taka þátt í slíkri glæfraför sem hér er um að ræða og hafa slíka forsjárhyggju uppi á borðum. (Forseti hringir.)

Ég óska eftir að vera settur aftur á mælendaskrá, herra forseti.