heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Herra forseti. Ég ætlaði að koma með nokkrar athugasemdir við þetta frumvarp. Í fyrsta lagi kemur þar fram að eigendur hins opinbera hlutafélags eigi að gera með sér hluthafasamkomulag. Það samkomulag virðist ekki hafa verið gert. Gert er ráð fyrir að það verði gert eftir að hlutafélagið hefur verið stofnað. Í slíku samkomulagi felast auðvitað skuldbindingar milli aðila sem eiga að varpa skýrari mynd á það með hvaða hætti menn ætla að starfa saman og hvernig á að leysa úr þeim ágreiningsmálum sem gætu komið upp. Hvernig á að gera það?
Einnig er spurning hvort hluthafasamkomulag hefði ekki átt að fylgja frumvarpinu, hvort ekki hefði átt að vera búið að gera drög að hluthafasamkomulagi samhliða frumvarpinu. Hefði ekki verið betra að það fylgdi frumvarpinu í staðinn fyrir að reiknað væri með að það yrði gert eftir á? Varðandi tímasetningu á innheimtu tafagjalda gerir frumvarpið ráð fyrir að þau verði farin að skila tekjum árið 2022. Ég geri athugasemd við að hönnun og byggingu vega verði lokið á þeim tíma og efast stórlega um að þetta verkefni verði farið að skila tekjum af veggjöldum eða tafagjöldum árið 2022. Mér finnst það frekar skammur tími vegna þess að það á eftir að hanna ýmsar þessar framkvæmdir og það á eftir að framkvæma þær.
Eins og ég hef bent á í fyrri ræðum mínum skortir síðan algerlega á að búa til lagaramma um veggjöld. Það er ein af þessum stóru athugasemdum sem við höfum gert við samgönguáætlun. Þar er framsetningin á veggjaldahugmyndinni mjög brotakennd. Hún kemur fyrir í mjög mörgum stjórnarfrumvörpum en það er engin heildstæð framsetning á henni. Við höfum kallað eftir því að stjórnvöld vinni að því. Þau hefðu náttúrlega átt að gera það áður en þessi brotakenndu frumvörp komu fram. Heildstæða löggjöf um veggjöld hefði átt að setja fram samhliða. En það er ekki gert. Það á að byrja á öfugum enda. Það á að leggja þetta fram í ýmsum stjórnarþingmálum sem á að afgreiða á þessu þingi þegar veggjaldahugmyndin hefur ekki verið útfærð svo neinu nemi. Hér er gert ráð fyrir að strax eftir eitt og hálft ár, 2022, verði farið að greiða tafa- eða flýtigjöld á vegum höfuðborgarsvæðisins. Ég er ekki viss um að fólk átti sig á því hversu skammt er í að sá tími renni upp.
Ég ætla líka að orða það að flýtirinn virðist hafa verið svo mikill að það gleymdist að gera ráð fyrir því hvernig ætti að skera úr málum í stjórn félagsins. Sex sitja í stjórninni og nefndin hefur gert breytingartillögu um það augljósa atriði en það var fleira sem ekki vannst tími til vegna þess að þegar frumvarpið er samið, líklega í ráðuneytinu, er flýtirinn svo mikill að enginn tími vinnst til að birta það á samráðsgáttinni, eins og venjan er með flest frumvörp til að gefa hagsmunaaðilum, eða fólki yfirleitt, kost á að gera athugasemdir áður en frumvarpið er lagt fram á þinginu. En í þessu tilviki var flýtirinn svo mikill að það vannst ekki tími til þess.