heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Hæstv. forseti. Ýmsar skýringar, margar hverjar loðnar, hafa verið gefnar á því hvað borgarlína er, hugmyndin að fyrirbærinu, eða hvaðan hugmyndin kemur. Er verið að tala um lest eða strætisvagn? Verður borgarlínan vagn á teinum eða langur strætisvagn, liðvagn knúinn rafmagni? Borgarlínan gerir kröfu um stoppistöðvar þar sem nauðsynlegt er að fólk komist inn, t.d. fólk í hjólastólum, fólk með göngugrindur, handleggsbrotið fólk á leið á spítala eða sjúklingar á leið á Landspítala.
Línukerfi henta prýðilega þar sem bílaeign er lítil, álag á almenningssamgöngur mikið, biðraðir á biðstöðvum almenningsvagna langar og afgreiðsla inn í þá tímafrek. Slíkt kerfi getur auðvitað aukið flutningsgetu. Um það deilir enginn. Gallinn við slíkt kerfi hér er að svo háttar ekki til hér á landi. Álag á almenningssamgöngukerfið er svo lítið að það stendur nánast ekki undir nafni. Eins og er getur það flutt 4–5 sinnum fleiri en viðskiptavinirnir eru. Það er því u.þ.b. einn af hverjum 25 eða 4% á álagstímum. Þetta segir að jafnvel þótt strætó taki 12–20% af umferðinni, eins og hann getur nú þegar, sér varla högg á vatni.
Borgarlína er afar vond hugmynd og sprottin upp úr einhverjum draumi um vistvænar almenningssamgöngur. Hún á eftir að kosta gríðarlegar fjárhæðir. 60 milljarðar, sem er verið að tala um núna, duga varla fyrir núvirtu rekstrartapi. Svo eru stórir vagnar, sem eyða 60 lítrum á 100 km í stað 45 í dag, ekki vistvænir. Marga dreymir um rafmagnsvagna. Það strandar á því að ekki er pláss fyrir geymana nema uppi á þaki sem er afar vont, að sjálfsögðu. Kannski verða lagðar raflínur sem tengja vagnana en sá kostnaður var ekki inni í vafasömum kostnaðarútreikningum fyrir nokkrum árum. Þá var reiknað með að vagnar yrðu keyrðir með metani. Meira að segja var lagt út í miklar fjárfestingar í gasgerðarstöð.
Hvernig á landsbyggðin að nýta sér borgarlínuna? Verða gerð risabílastæði í Mosfellsbæ og við Rauðavatn svo að fólk geti geymt bílana þegar það kemur til höfuðborgarinnar? Ekki getur það nýtt sér göturnar þegar búið verður að þrengja að öllu. Borgarlínuhugmyndin nýtur fylgis, sérstaklega hjá þeim sem búa miðsvæðis. Hvað skyldu borgarfulltrúar Reykjavíkurbúa segja um þetta?
En mér datt annað í hug líka, hæstv. forseti. Óvissuferðir eru mjög vinsælar í dag og vinnustaðir og félagasamtök fara oft í skemmtiferðir sem kallast óvissuferðir og hef ég tekið þátt í slíkum ferðum. En það er alltaf þannig með slíkar ferðir að maður veit að maður kemst heim að lokum og treystir því að fararstjórinn hafi undirbúið ferðina þannig og yfirleitt er gefinn út heimkomutími fyrir brottför. Þessar ferðir eru mjög skemmtilegar og oft gerist eitthvað skemmtilegt á leiðinni. En í þessu máli er boðið upp á óvissuferð þar sem bensínið á tanknum er frekar lítið. Áfangastaðir eru ekki undirbúnir. Ekki er búið að kaupa aðstöðu fyrir neinn áfangastað. Fólk veit í raun og veru ekki heldur hvenær það kemst heim af því að þetta gæti allt saman klikkað. (Forseti hringir.)
Hæstv. forseti. Ég bið um að vera settur aftur á mælendaskrá.