150. löggjafarþing — 126. fundur,  24. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[18:40]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Við ræðum hér enn frumvarp um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu sem eru fjármagnaðar að miklu leyti í skjóli Sjálfstæðisflokksins til að þjóna lund borgarstjórnarmeirihlutans í Reykjavík. Ég veit ekki hvort forseti hefur lesið bókina Undraverður árangur sósíalískrar hugsunar, en það lítur út fyrir að forysta Sjálfstæðisflokksins hafi lesið þá bók og trúað henni.

Ég var þar kominn áðan í ræðu minni að fara yfir áfanga eitt og tvö í svokallaðri borgarlínu. Þar sem hún á að flýta för manna um borgina fannst mér alltaf eitthvað dularfullt að fyrsti áfanginn átti að vera frá Höfða í norðaustri, hringaka borgina og enda í Hamraborg í Kópavogi á 13 km með 20–25 stoppum á leiðinni. Í mínum huga er þetta ekki hratt yfir farið. Ég minnti á í einni af fyrri ræðum mínum, og þótt forseti sé stórum yngri maður þá man hann kannski svo langt aftur, að hér var kerfi í strætó í Reykjavík þar sem voru leiðir sem ekki stoppuðu mjög víða, m.a. Kleppur hraðferð, leið nr. 13. Stoppaði mjög sjaldan og var fljót í förum. En þessi nýja Kleppur hraðferð svarar ekki þessu kalli. 13 km og 20 stopp á leiðinni er ekki hratt yfir farið.

Ég fór að skoða leið nr. 2. Þá fór að verða meiri svipur á þessu. En samt sem áður, herra forseti, og tel ég mig þekkja dável til akstursskilyrða í þessari borg, sé ég ekki að á þessum akstursleiðum sé pláss fyrir hina svokölluðu rauðu dregla. Hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti að þeir yrðu rauðir, veit ég ekki. Ég sé ekki að hér sé pláss fyrir þessa dregla, alls ekki. Og þar sem er pláss fyrir þá munu þeir taka akreinina báðum megin við, algerlega, eins og t.d. á Suðurlandsbraut. Ég sé ekki annað. Og eins og ég hef lýst áður þá er ekki pláss fyrir rauða dregla við Hverfisgötu og ekki heldur við Lækjargötu og hvað þá við Skothúsveg — nema menn ætli að fara að breikka brúna fallegu sem við höfum hér í réttri sjónlínu við Alþingishúsið og jafnvel vinna landvinninga undir þá brú út í Tjörnina. Það hef ég ekki séð, herra forseti, en ég veit ekki alveg á hverju maður á von til þess að menn þjóni lund sinni.

Ég var kominn þar áðan að ég sagði frá þessu korti sem ég fann núna en það var í desember í fyrra sem tólf manna hönnunarteymi tók til starfa við þessa framkvæmd og okkur var sagt, og ég beið mjög spenntur og bíð enn, að í dag ætti að kynna sætin í biðstöðvunum. Ég er búinn að hlakka mjög til, herra forseti, en það bólar ekkert á sætunum enn þá. Það er ekki góðs viti ef áætlanir standast ekki betur en svo að ekki hafi verið hægt að kynna gerð sætanna síðan í desember og fram á þennan dag. Þá verður djúpt á Hafliða öllum, svo ég snúi nú út úr máltækinu, herra forseti, ég vona að ég fái ekki bágt fyrir það.

Ég sagði áðan að samkvæmt því sem hér er eru í sjálfu sér ágætislínur frá Mosfellsbæ og niður í Vatnsmýri og frá Kringlunni og suður í Smára í Kópavogi og/eða kvíslast upp í Breiðholt. Þetta er allt saman gott og vel. Ég skil ekki af hverju menn setja ekki bara gamla góða strætó á þessar línur. Af hverju ætla menn að setja þessi tröllauknu farartæki á þessar línur í staðinn fyrir að setja góða gamla strætó á þær og hafa þá bara ferðirnar frekar örari? Ég hef reynt að lýsa þessu fyrir mönnum og þar með formanni Samfylkingarinnar í morgun, sem er reyndar ekki hér í salnum núna, en ég get ekki sagt frá þeim viðskiptum nema ég fái orðið aftur, herra forseti.