heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Hæstv. forseti. Síðasta áratuginn hefur umferðarástand á höfuðborgarsvæðinu hríðversnað. Þetta höfum við öll orðið vör við. Ég rakti það aðeins í ræðu hér rétt áðan að fólki hefur fjölgað hér og ekki hefur verið farið í uppbyggingu stofnvega á svæðinu, t.d. hefur verið svokallað framkvæmdastopp og það á meðan íbúum og ferðamönnum hefur fjölgað mikið.
Auðvitað hefur breytt hegðun og aukin velmegun leitt til þess að bílaeign hefur aukist og sjálfsagt er að athuga hvort ekki sé hægt að setja inn hvata sem jafna dálítið álagið yfir daginn. Vinnustaðir geta jafnvel hafið dagvinnu sínu á mismunandi tímum o.s.frv. Ég hef farið yfir það. En umferðartafir eru óeðlilega miklar miðað við aðrar borgir af svipaðri stærð og flestir eru sammála um að nauðsynlegt sé að fara í átak í uppbyggingu samgönguinnviða hér á höfuðborgarsvæðinu. En spurningin er alltaf: Hvaða stefnu skal taka?
Við vitum það, í það minnsta við hér í þessum sal, að opinbert fjármagn er takmarkað og þess vegna verður að nýta það vel. Við búum í strjálbýlu landi og það þýðir að við uppbyggingu þjóðvegakerfisins, sem er þjóðinni nauðsynleg en á sama tíma mikil byrði fyrir skattborgarana, þarf að vanda til verka. Undanfarin ár hefur orðið mikil aukning í komu ferðamanna og við bíðum flest eftir því að þeir fari að láta sjá sig aftur. En aukningin hefur haft þau vondu áhrif að alvarlegum slysum á þjóðvegum hefur fjölgað. Það er svolítið slæmt vegna þess að árlegur kostnaður við umferðarslys hér á landi hleypur á tugum milljarða. Ljóst er að átak þarf að eiga sér stað í uppbyggingu á þjóðvegum á landsbyggðinni til að fækka slysum.
Það er sem sagt takmarkað hversu mikið fé unnt er að veita í samgönguinnviði á höfuðborgarsvæðinu. Þá er ég auðvitað að tala um borgarlínu sérstaklega. Þegar ég tala um forgangsröðun vona ég að þetta endi eins og barátta Davíðs við Golíat. Flestir eru þó sammála um að bæta þurfi þjónustu Strætó. Það er fyrsta skrefið. Talað er um að auka tíðni vagna. Ég held að mjög mikið sé til í því þótt það hafi verið reynt með litlum árangri. Ég veit ekki hvort fullreynt er með það.
Spurningin er líka hvernig við eigum að halda áfram í millitíðinni, ef við getum sagt sem svo, þangað til við erum búin að sjá til þess að fólk hafi yfirleitt áhuga á að ferðast með Strætó. Til að við getum tryggt viðunandi umferðarástand hér á höfuðborgarsvæðinu þarf að reisa nýja stofnvegi og breikka þarf hluta þeirra sem fyrir eru. Og það þarf að fjölga mislægum gatnamótum. Það er bara staðreynd. Annað sem er gott við þau er að þau auka flutningsgetu stofnvega og fækka þar af leiðandi líka slysum. Að færa vegi í stokk gerir ekki sama gagn og mislæg gatnamót og er líka mun dýrara. Það er því ekki réttlætanlegt að fara í dýrustu lausnirnar þegar hagkvæmari lausnir eru til, nema þá kannski þar sem íbúabyggð er algerlega upp við stofnveg.
Þetta þarf að hugsa allt upp á nýtt og taka rétta stefnu. Ég bið um að verða sett aftur á mælendaskrá.