heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Herra forseti. Ég hef verið að fara aðeins yfir einstakar greinar samkomulagsins sem koma fram í þessu frumvarpi um stofnun hlutafélags sem Reykjavíkurborg, sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og ríkissjóður ætla að gera með sér. Ríkissjóður er eigandi hlutar sem nemur 75% og sveitarfélögin 25%. Í frumvarpinu er fjallað um einstakar greinar á bls. 7 og áfram. Á bls. 9 er fjallað um 6. gr. og þar segir, með leyfi forseta:
„Í greininni segir að ríki annars vegar og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hins vegar geri samning við félagið þar sem nánar er kveðið á um hlutverk félagsins vegna uppbyggingar samgönguinnviða. Í slíkum samningi skal m.a. fjalla um fjármagnsskipan félagsins, eignfærslu mannvirkja til viðeigandi rekstraraðila sem og ráðstöfun annarra eigna við slit félagsins. Ekki er miðað við að félagið sem slíkt beri ábyrgð á rekstri einstakra vegamannvirkja.“
Þá spyr maður sig, herra forseti, með hvaða hætti þessi ráðstöfun eigna við slit félagsins fer fram. Um það er ekki neitt fjallað í frumvarpinu, sem er náttúrlega mikill ágalli á því. Við slit félagsins er verið að ráðstafa miklum verðmætum sem eru þessi samgöngumannvirki og þá spyr maður: Á ekki að gera það á heildarkostnaðarverði? Um það er ekkert fjallað hér. Ég verð að segja, herra forseti, að það er mikill ágalli á þessu frumvarpi að ekki skuli vera minnst á það.
Það kemur líka fram hér um 6. gr. að félaginu er ætlað að starfa í a.m.k. 15 ár, það sé framkvæmdatíminn, og svo segir áfram: „Miðað er við að aðilar leysi sérstök álitaefni sem kunna að koma upp á framkvæmdatíma með samkomulagi.“
Þetta er 15 ára tímabil. Það eru þó nokkrar borgarstjórnir og ríkisstjórnir sem koma að þessu. Menn hafa náttúrlega misjafnlega sýn á það með hvaða hætti þetta á að vera. Þess vegna held ég að sé nauðsynlegt að það komi sérstaklega fram hvernig menn hugsa sér að leysa ágreiningsmál. Það er bara sagt að þeir muni leysa þau, ekkert sagt nánar um það. Það er verulegur ágalli á þessu.
Þetta varðaði 6. gr. Ég ætla að víkja hér að fleiri greinum á eftir en ég vil þó koma því að rætt hefur verið sérstaklega um þetta borgarlínuverkefni að byggingarkostnaður geti lækkað með tilkomu borgarlínu. Þá er væntanlega horft til þess að íbúi sem er nálægt biðstöð þurfi síður að eiga bíl og það þurfi því færri bílastæði og þannig lækki byggingarkostnaður. Þetta er svolítið langsótt, finnst mér, en þetta er nú það sem hefur verið sett fram. Á móti kemur að borgarlínan krefst þess að byggð verði þétt umhverfis línuna. Það hefur verið gagnrýnt af hálfu prófessors í skipulagsfræði, Trausta Valssonar. Hann hefur gagnrýnt það og segir að þessi byggð verði mjög óaðlaðandi. Það er full þörf á því og er efni í langar og margar ræður að fjalla hér bara almennt um arkitektúr í Reykjavíkurborg og hversu aðlaðandi hann er, það er margt sem þyrfti að betrumbæta í þeim efnum. En það er kannski önnur saga. Þetta er umhugsunarefni og það er nauðsynlegt að fram komi hvernig þessari byggð verði háttað meðfram borgarlínunni. Við þurfum ekki á fleiri óaðlaðandi byggingum (Forseti hringir.) að halda í Reykjavíkurborg, svo það sé sagt.
Herra forseti. Tíminn er liðinn, ég heyrði í bjöllunni og sé það á rauða ljósinu, og óska eftir að verða settur aftur á mælendaskrá.