heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Hæstv. forseti. Formaður Miðflokksins, hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, kom áðan inn á kafla sem kallaður er Samráð. Það er sérstakt að heiti kaflans skuli vera Samráð þegar í honum kom ekkert samráð fram. Hann ætti eiginlega bara að heita Ekkert samráð eða eitthvað slíkt. Þar sem mönnum þótti mjög áríðandi að leggja þetta fram á Alþingi þá var ekki haft samráð um drög að frumvarpinu í samráðsgátt stjórnvalda. Þetta er svolítill ljóður á vinnubrögðum á Alþingi og gerir það oft að verkum að hlutirnir fara svolítið í hnút. Við leyfum ekki málum að fá tíma til að þróast, þroskast og fá umræðu meðal almennings og í þinginu. Við sjáum að í sumum öðrum þjóðþingum taka hlutirnir lengri tíma og menn vanda meira til verka. Þar er meiri samstaða eða sameiginlegar niðurstöður eru algengari. Hér er svolítið algengt að menn væflist lengi með málin í fanginu einhvers staðar í lokuðum herbergjum og ætli svo að keyra þau í gegnum þingið. Þetta mál á vitanlega ekki að vera þannig. Ef menn vilja hafa einhvers konar sátt eða samkomulag um þetta félag og þær áætlanir sem tengjast því held ég að það þurfi að vinna þetta allt öðruvísi. Við sjáum hversu miklum framförum samgönguáætlun tók í nefndinni þegar menn gáfu sér tíma í að ræða hana og fara yfir hana. Þar hefði mögulega þurft enn þá meiri tíma, að gefa þessu enn þá meira rými til að ná frekari sátt.
Þetta mál er hins vegar að mörgu leyti mjög varasamt, ekki síst fyrir okkur sem viljum ekki að verið sé að reyna að hafa vit fyrir fólki í öllum sköpuðum hlutum. Hér kemur beinlínis fram að stuðla eigi að breyttum ferðavenjum. Það á sem sagt að reyna að þröngva fólki í að nota þá vagna sem þarna verða. Það er augljóst að þrengja þarf að einkabílnum eða möguleikum hans á að komast um borgina. Það mun hins vegar koma niður á öllum þeim fjölmörgu fjölskyldum sem þurfa nauðsynlega á einkabílum að halda til að komast á milli staða og skutla börnum o.s.frv., sem við þekkjum flest. Og í ljósi þess hve mikil og hröð aukning er á notkun einkabíla, hvað þeim hefur fjölgað hratt og íbúum höfuðborgarsvæðisins líka, sér maður fram á enn meiri umferðartafir og -teppur nái þetta allt saman fram að ganga. Þótt ákveðnar samgöngubætur aðrar, t.d. varðandi stofnbrautir og slíkt, séu nefndar í tengslum við þetta mál verð ég viðurkenna, herra forseti, að ekki er til sá þráður í mér að ég treysti meiri hluta borgarstjórnar til að láta þau verkefni ganga fram.
Ég held reyndar að miðað við þann tón sem virðist liggja í loftinu og er í þessu frumvarpi megi ekkert segja hér sem gæti í rauninni hvatt til þess að verkefnin næðu fram að ganga. Ég held hins vegar að sveitarfélögin hér í kring ættu líka að velta fyrir sér samgöngunum á höfuðborgarsvæðinu. Það er svo furðulegt að sjá og lesa hvað sumir bæjarfulltrúar þar hafa sagt og skrifað. Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Hafnarfirði hélt því t.d. fram að verið væri að tefja framkvæmdir við mannvirkið þar, sem var vitanlega ekki rétt. Það var mjög frjálslega farið með þar sem búið var að fjármagna þær framkvæmdir. Ég held að það hafi verið gengið frá því í mars síðastliðnum. Alls konar æfingar eru notaðar til að slá ryki í augu fólks. Þessir ágætu bæjarfulltrúar nágrannasveitarfélaganna ættu hins vegar að spyrja sig og svara bæjarbúum um hver endanleg ábyrgð þeirra er í málinu. Hvað mun þetta kosta sveitarfélögin þegar upp er staðið? Og hvernig ætla þessir ágætu stjórnendur tryggja að íbúar komist þokkalega klakklaust, þokkalega hindrunarlaust, úr sínum sveitarfélögum og vestur á land, norður í land, suður á land o.s.frv.? Það er ekki verið að leysa nema lítinn hluta af þeim vandamálum sem þarf að leysa með þessu öllu saman.
En alvarlegast er, herra forseti, að verið er að senda skattgreiðendum óútfylltan víxil fyrir kosningaloforðum borgarstjórnarmeirihlutans í Reykjavík. Og það er furðulegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli taka þátt í því. Það finnst mér með ólíkindum.