150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[11:41]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Birgir Þórarinsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hv. þingmaður sagði að þessi ágæti gestur sem kom á fund fjárlaganefndar í gærkvöldi hefði verið óskýr. Ég er algerlega ósammála honum. Ég tók hins vegar sérstaklega eftir einu hvað hv. þingmann varðar. Hv. þingmaður er þekktur fyrir það að vilja skoða hlutina vel og með gagnsæju hugarfari og gagnrýnum augum. En það var alveg ljóst að hv. þingmaður var búinn að mynda sér skoðun áður en hann hlustaði á viðkomandi gest. Það var alveg augljóst. Hv. þingmaður hefur margsinnis talað um að það verði að fylgja lögum um opinber fjármál, sérstaklega í tengslum við veirufaraldurinn og alla þessa aðgerðapakka sem hér hafa verið settir fram af hálfu ríkisstjórnarinnar. Þá er hv. þingmaður alltaf að tala um að þetta sé ekki samkvæmt lögum um opinber fjármál og fer í saumana á því og það er gott og ég hrósa hv. þingmanni fyrir það. En svo þegar kemur að því að meta það hvort þessi stóra framkvæmd upp á tugi milljarða sé í samræmi við lög um opinberar framkvæmdir, nei, þá er hv. þingmaðurinn ekki mættur í þetta gagnrýna hlutverk. Hann er búinn að mynda sér skoðun, segir að viðkomandi hafi verið óskýr, gesturinn sem er hæstaréttarlögmaður og endurskoðandi og þekkir málið vel og rakti þetta mjög vel. Nei, þá er hann ekki alveg eins og hann á að vera vegna þess að hv. þingmaður er búinn að mynda sér skoðun um málið og það finnst mér afar dapurlegt vegna þess að hv. þingmaður er þekktur fyrir það að reyna að fara vel ofan í hlutina og menn verða að vera sjálfum sér samkvæmir, hv. þingmaður, þegar þeir fara yfir svona mál.

Þetta er mjög skýrt í lögunum og ég hvet hv. þingmann til að fara yfir lög um skipan opinberra framkvæmda. Þar segir t.d. að rekstraráætlun eigi að liggja fyrir. Það er bara eitt af þeim dæmum sem sýna að málið er ekki nógu vel unnið. Það á að vanda sig og þess vegna á að fresta þessu máli, gera þessa frumathugun samkvæmt lögum um opinberar framkvæmdir og síðan á að stofna félagið. Það er rétta leiðin í þessu.

(Forseti (SJS): Hv. þm. Björn Leví Gunnarsson, 11. þm. Reykv. s., óskar eftir að bera af sér sakir. Forseti vekur athygli á því að það er ekki hægt að framlengja orðaskipti í andsvörum undir þeim formerkjum og forseti treystir því að hv. þingmaður tilgreini þær sakir sem hann telur að hafi ranglega verið á sig bornar.)