heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Herra forseti. Ég var í síðustu ræðu að fara örlítið yfir ritgerð Pálma Sigurjónssonar sem hann skrifaði við Háskóla Íslands fyrir tæpum tveimur árum, í október 2018, þar sem hann fer yfir forsendur, rekstur, kostnað, umferðarspár og notkunarspár. Hann segir í sinni ritgerð að það sé eðlilegt að skattgreiðendur og allir landsmenn hafi skoðanir á þessu máli enda er það mjög kostnaðarsamt.
Það sem er athyglisvert, herra forseti, eru þær forsendur sem ég var að fara yfir í minni síðustu ræðu, þ.e. forsendur um notkun fólks á almenningssamgöngum. Það kemur fram í þessari ritgerð að forsendurnar sem eru gefnar eru þær að hlutfallið verði 12% árið 2040, aukist sem sagt úr núverandi 4% í 12%. Honum finnst þetta bjartsýnt og ég tek mjög undir það vegna þess að það er búið að gera tilraun síðustu níu árin til að auka hlut almenningssamgangna og búið að leggja verulegt fé í það og árangurinn hefur enginn verið. Hlutur almenningssamgangna er enn þá 4%. En hér er gert ráð fyrir því að hlutur almenningssamgangna verði 12% eftir 19 ár, þ.e. það verði þreföldun og meira en tvöföldun til ársins 2030, næstu níu árin. Þá verði hlutur almenningssamgangna kominn upp í 9%. Hvernig ætla menn að ná þessu? Hvað hafa menn fyrir sér í þessu?
Nú er fólk mikið að fara yfir á rafmagnsbíla. Reikna menn með að það verði minni notkun á fjölskyldubílnum þegar kannski 30% eða helmingur höfuðborgarbúa verði komin á rafmagnsbíla? Að þá verði minni notkun á bifreiðum? Mér finnst þetta vera mjög bjartsýnar spár sem reikna með því að hlutur almenningssamgangna fari úr 4% í 12% á 19 árum. Þetta er alveg magnað. Menn reikna sig upp í draumana. Þeir hafa einhverja draumsýn og svo bara reikna þeir sig upp. Þetta er alþekkt auðvitað og nokkurs konar íslensk aðferð við að byggja loftkastala sem falla svo um sjálfa sig mjög fljótlega. Ég geri alvarlegar athugasemdir við þetta og hef gert það margoft að menn eru í einhverjum draumaheimi og skattgreiðendur eru látnir greiða þetta. Ég er algjörlega á móti því. Þetta er óforsvaranlegt.
Svo er farið yfir í rekstrarkostnaðinn. Hver er rekstrarkostnaður borgarlínu miðað við þessa ritgerð? Höfundur reiknar það hver rekstrarkostnaðurinn væri. Hann fær út að rekstrarkostnaður borgarlínu þegar hún verður komin í gagnið verði 4,7 milljarðar á ári. Átta menn sig á því hvert þeir eru að fara og hverjar tekjur almenningsvagna hafa verið síðustu árin? Ég skal segja ykkur það. Tekjurnar voru 1,6 milljarðar árið 2015, 1,8 milljarðar 2016 og 1,8 milljarðar 2017. Hver voru útgjöld almenningsvagnanna á síðastliðnum árum? 6,9 milljarðar, 7,3 milljarðar og 7,7 milljarðar. Tekjurnar nema varla meira en fjórðungi af rekstrarkostnaði. Samt ætla menn að bæta ofan á þetta kerfi nýju kerfi, halda því gamla en bæta ofan á það nýju kerfi sem mun kosta 4,7 milljarða á hverju ári.
Eru menn að fara í algjöra óvissuferð eins og borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna og oddviti þeirra hér í Reykjavík, Eyþór Arnalds, segir í grein í Morgunblaðinu fyrir nokkrum dögum síðan: „Þetta er alger óvissuferð.“ Þá verður rekstur Strætó og borgarlínu orðinn u.þ.b. 12 milljarðar á ári (Forseti hringir.) og tekjurnar 1,8. Hver ætlar að borga þetta?