150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

almannatryggingar.

437. mál
[13:33]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Alveg eins og í frumvarpinu sjálfu liggur ekki fyrir mat á áhrifum á ríkissjóð eins og lög um opinber fjármál kveða á um að eigi að fylgja með ríkisstjórnarfrumvörpum og breytingartillögu nefndar og þess háttar. Mig langaði til að fræðast hjá hv. þingmanni um hvernig staðan væri einmitt á því mati á áhrifum sem þessar upphæðir og þessar breytingar hafa á ríkissjóð.