150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

almannatryggingar.

437. mál
[13:34]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef kannski ekki nákvæmar upplýsingar um hver staðan er á þessu máli en þetta hefur verið tekið út og nefndasvið fór vel yfir þessi atriði samkvæmt lögum um opinber fjármál og taldi að þau hefðu ekki þau áhrif að það þyrfti breytingar á þessu frumvarpi. Þessi breytingartillaga snýr aðeins að því að þessar upphæðir voru miðaðar við árið 2019, enda var frumvarpinu útbýtt á síðasta ári, og það er verið að breyta þeim til að uppfæra þessar tölur samkvæmt verðlagsbreytingum milli ára.