almannatryggingar.
Herra forseti. Fram er komin breytingartillaga til að uppfæra tölur í frumvarpinu sem reyndust vera gamlar og úreltar. Það er nú gott þegar farið er í að lagfæra það sem rangt er í ekki flóknari málum en þessu, þannig að það er mjög til bóta.
En varðandi spurningu hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar þá var hún fullkomlega réttmæt. Þetta frumvarp er mjög jákvætt. Það er mjög gott að fá inn þessa heimild til greiðslu hálfs lífeyris en því miður þá var lögum ekki fylgt við gerð þessa frumvarps þannig að metið væri að öllu leyti hver kostnaðurinn yrði fyrir ríkissjóð yrði þetta frumvarp að lögum. Það er auðvitað enn eitt merkið í þingsalnum um vinnubrögð sem við getum bara ekki samþykkt að séu viðunandi, bara alls ekki. Við vitum í raun ekkert hver kostnaðurinn verður. Við vitum það ekki enn þá en við erum samt að afgreiða þetta út.
Við erum sammála um ágæti þessa fyrirkomulags en það voru samt mörg álitaefni varðandi þetta, varðandi hverjum það gagnast helst og hverjir það eru sem helst eru skildir eftir eða sem ekki geta nýtt þetta að fullu. Það er auðvitað í þessu stórpólitísk mál eins og umræða um almannatryggingakerfið, umræða um lífeyrissjóðina, og þetta er auðvitað eitthvað sem við ættum að taka heilan dag í að ræða. Til hvers er almannatryggingakerfið okkar og af hverju erum við með lífeyri úr almannatryggingakerfi fyrir þá t.d. sem ekki þurfa á því að halda? Eða eigum við að hafa almannatryggingakerfið þannig að það greiði til allra og að lífeyrissjóðirnir leggist svo ofan á? Þetta er auðvitað stórpólitískt mál sem við ættum að gefa okkur góðan tíma til að ræða í þingsal en því miður gefst ekki tími til þess. Hér er verið að heimila töku hálfs lífeyris og ég held að það hljóti allir að sjá að það er framtíðin, ekki síst þegar við horfum til breytts samfélags og til þeirrar staðreyndar að við lifum lengur og atvinnuþátttaka okkar er ólíkari. Við stundum fjölbreyttari atvinnu, það er ekki lengur þessi stefna að klára einhvern skóla, ýmist með gagnfræðaprófi eða stúdentsprófi eða mögulega háskólaprófi, fara svo í starf sem fólk situr bara í út starfsævina og fær þá gullúr fyrir vel unnin störf heldur er fólk í mun fjölbreyttari störfum en áður og af því að störfin eru fjölbreyttari er meiri möguleiki á að draga hægt og rólega úr atvinnuþátttöku.
Þetta er í raun það sem við ættum að fjalla um. Á sama tíma og þetta mál er til afgreiðslu ættum við að fjalla um sveigjanleika við starfslok, þ.e. sveigjanlegri aldur við starfslok. Því miður hefur ekki verið stemning fyrir því að afgreiða mál út úr hv. allsherjar- og menntamálanefnd sem lýtur að því að leyfa hærri lífaldur við starfslok. Af því að ég held að með þessu breytta fyrirkomulagi okkar eigum við alveg að ráða við það.
Ég tek undir það sem kom fram hjá hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni. Við þurfum að vanda okkur meira, sérstaklega þegar við erum að ákveða ráðstöfun á almannafé úr opinberum sjóðum. Þá er nú skárra ef við förum að lögum við samningu frumvarpa og samþykktir hér á þingi, að við sjálf förum fram með góðu fordæmi og fylgjum lögunum, ég held að það sé algjört lágmark að löggjafinn fylgi lögunum. Samfylkingin styður að sjálfsögðu þetta frumvarp og þær breytingar sem lagðar eru til.