150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

almannatryggingar.

437. mál
[13:45]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Mig langaði til að fá að koma hér upp og tala stuttlega um þetta frumvarp sem er jákvætt því að hér er verið að stíga mikilvæg skref og tímabær með því að heimila greiðslu hálfs lífeyris. Ég verð að taka undir með hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur hvað varðar vinnubrögð við lagasetningu og verð nú að viðurkenna að það er kannski upplifun mín í þessum fyrstu skrefum í þessu starfi, sem er áhugavert og umhugsunarvert myndi ég segja í leiðinni, að kynnast því með hvaða hætti frumvörp í ákveðnum tilvikum fara hér í gegn. Í þessu tilviki er um að ræða breytingu sem augljóslega hefur í för með sér ákveðinn kostnað en við rennum dálítið blint í sjóinn með það hver hann er. Almennt séð myndi ég líka segja um lagasetninguna að það myndi vinna með henni og almennt séð værum við líklegri til að ná fram þeim markmiðum sem að er stefnt ef umræðan fengi að vera meiri, betri og þroskaðri.

Þá kannski aðeins að inntaki málsins. Ég hjó eftir því sem kemur t.d. fram hjá Landssambandi eldri borgara, sem fagnar þessu máli, að það er auðvitað reyndin og krafan, eðlileg krafa, að menn fái tækifæri til að draga hægt og rólega úr vinnu á efri árum og jafnvel í einhverjum tilvikum einfaldlega tækifæri til að vinna lengur. Eins og fram hefur komið er það auðvitað þannig að atvinnuferill fólks er öðruvísi en fyrir einhverjum áratugum síðan og eðlileg þróun að fólki sé gert það kleift, vegna þess að við lifum lengur, að draga hægt og rólega úr vinnu en það sé þá viðurkenning á því líka að það séu ákveðin lífsgæði í því fólgin að fá að hafa um það að segja. Þannig að ég held að þau skref sem stigin eru með frumvarpinu hvað þetta varðar, þ.e. heimild til töku hins hálfa lífeyris, séu af hinu góða.