150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

almannatryggingar.

437. mál
[13:48]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Þetta er fínasta mál en það eru nokkur atriði sem ég vil samt vekja athygli á, eins og kom fram í andsvörum áðan. Það hefur ekki verið lagt mat á áhrif þessa stjórnarfrumvarps en í lögum um opinber fjármál segir einmitt, með leyfi forseta:

„Hver ráðherra skal leggja mat á áhrif stjórnarfrumvarpa, þ.m.t. fjárhagsleg áhrif, áður en þau eru lögð fyrir ríkisstjórn og Alþingi …“

Það eru fleiri atriði sem þarf að leggja mat á eins og er talaði um þar. Þetta er gríðarlega mikilvægt í allri meðferð þingsins sérstaklega af því að þingið er nú einu sinni með fjárveitingavaldið og þarf að fá tiltölulega nákvæm gögn og upplýsingar til þess að geta tekið betri ákvarðanir um fjárveitingar til framkvæmdarvaldsins. Ég var til að mynda tiltölulega nýlega að spyrja um lögbundin verkefni ýmissa stofnana og þess háttar og svörin sem hafa fengist hingað til hafa verið mjög áhugaverð. Það kom t.d. svar frá Landspítalanum – háskólasjúkrahúsi um að hluti af lögbundnum verkefnum hans væri að halda úti blóðbanka en spítalinn gat samt ekki svarað því hversu mikið kostaði að halda honum úti, sem mér finnst gríðarlega áhugavert þegar upp er staðið. Af hverju veit spítalinn það ekki? Að sjálfsögðu veit hann það. Ef hann veit það, af hverju svarar hann því ekki? Merkilegt nokk.

Þetta er hluti af því að ef við eigum að starfa sem fjárveitingavald þá þurfa upplýsingarnar sem við fáum að vera nákvæmar. Þess vegna er sett í lög að það eigi að meta áhrif og sérstaklega fjárhagsleg áhrif stjórnarfrumvarpa þegar Alþingi er að fjalla um þau. Þá vitum við, þegar kemur að fjármálaáætlun og fjárlögum, að já, þetta er vegna þess að frumvarp sem við vorum að samþykkja á liðnu þingi kostar þetta og þetta mikið og það hefur þessi áhrif í næstu fjárlögum Upplýst ákvarðanataka hvað þetta varðar.

Að öðru leyti er þetta frumvarp um aukin réttindi og ákveðinn sveigjanleika og fleiri hópar sem komast þarna að og ekkert nema jákvætt um það að segja. Það er samt eitt sem mig langar til að fjalla um, sem mér finnst mjög viðeigandi og nauðsynlegt alltaf þegar fjallað er um lífeyrissjóðsmál. Sá lífeyrissjóður sem okkur er tryggður í þeim afborgunum sem við borgum til lífeyrissjóðs og vegna almannatrygginga er í rauninni bara helmingurinn af þeim lífeyri sem við söfnum okkur. Hinn helmingurinn er skuldlaust húsnæði þegar við förum á lífeyri. Ef fólk er ekki með skuldlaust þak yfir höfuðið þegar það fer á lífeyri, þá hefur það einfaldlega ekki efni á að lifa lífinu á einungis lífeyrissjóðstekjum nema það hafi verið með þeim mun hærri laun yfir ævina. En alla jafna er það þumalputtaregla að viðkomandi þurfi að eiga skuldlaust húsnæði þegar hann tekur við lífeyrissjóðsgreiðslum.

Þetta er í stóra samhenginu eitthvað sem þarf að skoða því að núna þegar fólk byrjar kannski að taka hálfan lífeyri fyrr þá hefur það tvímælalaust áhrif á hámarksupphæð lífeyris sem það fær greitt út ævina í staðinn fyrir að fresta töku lífeyris. Frá því sjónarhorni sem sagt er þetta mjög áhugavert mál líka og ekki eitthvað sem endilega ætti að vera sjálfgefið hverjum og einum sem hefur möguleika á því að nýta sér þessi réttindi að viðkomandi nýti sér þau, því ef viðkomandi er enn þá að greiða af húsnæði eða því um líkt eða býr í leiguhúsnæði þá er það að í stærra samhenginu kannski ekkert endilega sniðugt. En eins og ég segi er í þessu máli ákveðinn sveigjanleiki og möguleiki sem kemur tvímælalaust til með að gagnast ákveðnum hópi og er ekkert nema jákvætt um það að segja. En ég sakna samt þessa kafla um mat á áhrifum.

Nefndin tók málið vissulega upp og spurði þeirrar spurningar til að knýja framkvæmdarvaldið til að fara eftir lögum. Upplýsingarnar sem koma fram í nefndarálitinu eru um 100–300 milljónir, sem er ansi vítt, sem sagt stórt gat þarna. Það er mjög mikill munur á 100 og 300 milljónum meira að segja í stóra samhenginu. Ég sé ekki einu sinni fjallað um það í hvaða tilvikum þetta væru einungis um 100 milljónir og hvað myndi gera það að verkum að kostnaðurinn færi upp í 300 milljónir. Það er mjög eðlilegt að ráðuneytin myndu útskýra það betur þegar við fáum þessar sviðsmyndir eða kostnaðargreiningar í staðinn fyrir það sem manni finnst í rauninni að sé verið að gera þegar allt kemur til alls, að það sé einfaldlega verið að giska.

Það sem mér finnst mjög athyglisvert hvað varðar velflest mál sem við fáum inn í þingið er það hversu nákvæm ágiskunin er. Það er alla vega alltaf dálítið stór ágiskun sem fylgir matinu á ýmsu. Nýjasta og versta dæmið er mat á áhrifum af hlutdeildarlaunum — ég er að rugla saman orðum þarna, en þar var gert ráð fyrir að kostnaðurinn við að fá laun fyrir hlutastarf, hlutabótaleiðina, væri tæplega 800 milljónir en endaði í tæpum 30 milljörðum. Það stökk frá minna en milljarði upp í 30. Þegar allt kemur til alls erum við með hlutabótaleiðinni að nálgast 40 milljarða, 30 og eitthvað milljarða, sem vonandi verður ekki fullnýtt og maður vonar að sjálfsögðu að þróunin verði þannig að ekki verði þörf á því, að það verði ekki fullnýtt af þeim orsökum.

Þess vegna er mat á áhrifum frumvarpa svo mikilvægt. Við lendum oft í því að lög taka gildi strax og ekki er komin heimild fyrir kostnaði í fjárlögum ársins en þá er þessi aukakostnaður afgreiddur í fjáraukalögum í lok ársins. Ef matið á áhrifunum stenst ekki, eins og t.d. með launin, þar sem sjá má aukinn kostnað frá tæpum milljarði upp í tæpa 30, þá hefur það rosalega mikil áhrif á allan annan ríkisrekstur og þá skuldsetningu við erum að fara að setja okkur í því að stjórnarskráin er mjög skýr með þessar greiðsluheimildir. Það má ekki greiða neitt út nema það sé heimild fyrir því í fjárlögum eða fjáraukalögum. Túlkunin hefur verið sú að það sé hægt að leita eftiráheimildar í fjáraukalögum fyrir fjárútlátum sem hefur verið stofnað til á árinu. Það er svona ákveðin hefð sem hefur myndast og er virkilega slæm því að tilraunin til að láta mat á áhrifum stjórnarfrumvarpa koma fram í frumvarpinu sjálfu býr til ákveðin skilyrði, ákveðnar takmarkanir um fjárheimildir hvað það varðar og þær lagabreytingar. Það er í rauninni hálfgert fyrirframloforð þingsins þegar frumvarp er samþykkt að það sé skilyrði fyrir framfylgd frumvarpsins.

Þegar framkvæmdarvaldið brýtur skilyrðin um mat á kostnaðaráhrifum verður miklu erfiðara að útskýra að við getum bara útvegað okkur fjárheimildir eftir á í fjáraukalögum. Það á tvímælalaust að vera upplýst ákvörðun þingsins að við séum að samþykkja þessar breytingar með þessum kostnaði fyrir alla vega þennan hluta ársins, annað verði tekið til í fjárlögum næsta árs hvað varðar árið í heild. Það sé ákveðin fyrirframheimild sem er þá allt í lagi að klára á tæknilegum nótum í fjáraukanum. En þegar fjárheimildir fara svona gríðarlega fram úr kostnaðarmati er það orðið mjög vafasamt gagnvart stjórnarskránni, að það sé hægt að svína svona rosalega á þessu eins og var gert varðandi launavandamálin í Covid.

Þetta frumvarp er vonandi ekki af þeirri stærðargráðu og lítur ekki út fyrir það tæknilega séð að hægt sé að hlaupa þetta langt fram yfir en þetta sýnir samt nauðsynina á að matið sé til staðar. Og ekki bara að matið sé til staðar heldur að þingið taki ákvörðun um kostnaðarheimild framkvæmdarvaldsins hvað varðar þessa lagabreytingu þannig að ef eitthvað fer úr böndunum út af einhverju, segjum t.d. vitlausri tilvísun í grein — þannig var með frumvarpið um eldri borgara fyrir um ári þar sem vísað var í ranga grein og þar féllu niður allar skerðingar og það kostaði 2,5 milljarða á mánuði. Segjum sem svo að eitthvað slíkt hafi farið í gegnum nálaraugað í eftirlitinu. Það getur alveg gerst. Við erum mennsk, gerum mistök. Við reynum að sjálfsögðu að gera eins lítið af þeim og hægt er en slíkir atburðir gerast og þetta er hálfgerður varnagli gagnvart því, fjárheimildarvarnaglinn. Ef í þeim lögum hefði verið fjárheimildarákvæði hefði það mögulega vegið upp á móti mistökunum í tilvísuninni og hefði útskýrt hver heildarfjárheimildin ætti að vera.

Samkvæmt stjórnarskrá má einfaldlega ekki greiða út pening sem ekki er heimild fyrir í fjárlögum eða fjáraukalögum. Ef við værum betri í þessu værum við kannski ekki alltaf að lenda í þessum gríðarlega kostnaðarauka sem við höfum séð á undanförnum árum vegna frumvarpa sem hafa flogið í gegnum þingið á stuttum tíma og þess háttar. Þetta er bara spurning um að passa að fara einfaldlega eftir lögunum. Það er ástæða fyrir því að þessi ákvæði voru sett í lög um opinber fjármál og það er bara mjög mikilvægt að fara eftir þeim.