Orkusjóður.
Hæstv. forseti. Ég hef einmitt áhyggjur af þessu. Svo að ég fari rétt með tölur og annað, er ekki rétt hjá mér að í fjárlögum er í raun gert ráð fyrir 200 millj. kr. til orkuskipta og 33,9 millj. kr. til Orkusjóðs? Ef 33,9 millj. kr. eru allt sem er í Orkusjóði samkvæmt fylgiriti með fjárlögum er nú ekki feitan gölt að flá þegar kemur að því að deila því út. Ég geri ráð fyrir, í það minnsta samkvæmt þeim gögnum sem ég finn, að það séu þessir fjármunir. En ég vona að ég verði leiðréttur ef þetta er meira fé.
Ef 33,9 millj. kr. eiga að duga í allt sem sjóðurinn á að gera, umfram þessar 200 millj. kr. í orkuskiptin, held ég að við í framtíðarnefndinni þurfum aðeins að fara að huga að fortíðinni ef við ætlum að stíga þessi skref til fulls sem við viljum gera, eins og hv. þingmaður benti réttilega á. Við viljum leita leiða til að nýta betur þá orku sem við höfum. Við viljum horfa til framtíðar og sjá hvað við getum gert til að auka tækni og nýjungar. Hvernig gerum við landið samkeppnishæfara? Ég hef alla vega staðið í þeirri meiningu að til þess að gera Ísland samkeppnishæfara þurfum við m.a. að byggja á þeim auðlindum sem við eigum. Orka er einn þáttur í því. En við þurfum líka að sjálfsögðu að byggja upp mannauðinn, verðum að efla menntakerfið og slíkt. Til þess þurfum við líka að beina fólki út í t.d. hluti sem tengjast orkuskiptum, nýjungum og nýsköpun í orkumálum. En þá verðum við líka að geta sagt að einhver framtíð sé í því, fjármunir sem hægt er að byggja á, fjármagn til rannsókna, nýsköpunar, framkvæmda, til að búa til frumgerðir o.s.frv. Eins og ég skil þetta mál er, svo að ég segi það nú bara aftur af því að mér finnst það býsna fallegt máltæki, ekki feitan gölt að flá þegar að því kemur.