150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

Orkusjóður.

639. mál
[15:08]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég held að þetta sé alveg rétt. Ég held að kjarninn í gagnrýninni hljóti að vera að það er einhvern veginn verið að henda verkefnum út um hvippinn og hvappinn. Reyndar er nú komin einhvers konar vísir að árangursmælingum, sem ég kallaði lengi eftir. En í heildarsamhengi hlutanna er þetta þó einhvern veginn ekki alveg nógu markvisst. Bara svo ég taki konkret dæmi — afsakið slettuna, herra forseti: Landeyðing vegna stækkunar eyðimarka er yfir 20 milljónir hektara á ári. Það er risastórt ferli sem við verðum einhvern veginn að stoppa til þess að það verði ekki erfiðara að bregðast við loftslagsbreytingum.

Ef við værum að reyna að nálgast þetta á nógu kraftmikinn hátt myndum við t.d. koma landgræðsluflugi aftur á. Við myndum setja meira í skógrækt en við myndum líka nota þau orkufyrirtæki sem til eru til þess að stuðla að því að neytendur geti t.d. gert það sem þeir gera nú þegar; fólk kaupir sér rafbíla. Alls hafa verið keyptir 1.700 nýir rafbílar á landinu á þessu ári samkvæmt tölum sem ég sá fyrir nokkrum dögum. Þetta eru flottar tölur og neytendur eru að gera sitt til að stoppa losun gróðurhúsalofttegunda. En við verðum einhvern veginn að hafa sama taktinn af hálfu ríkisins og hjá ríkisfyrirtækjum. Ef Orkusjóður væri þeim kostum búinn að geta í raun gert alla þessa hluti þá værum við í töluvert betri stöðu og neytendur gætu hlaðið bílana sína víðar. Og kannski getum við líka séð meiri skógrækt og meira af öðrum verkefnum, sem ég veit að tengjast skógrækt ekki beint, en þetta hangir allt saman.