Orkusjóður.
Herra forseti. Ég er hingað komin til að ræða örlítið um frumvarp til laga um Orkusjóð í 3. umr. Mig langaði reyndar að byrja á því að þakka framsögumanni atvinnuveganefndar, hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni, fyrir að hafa kalla málið inn aftur eftir að ég nefndi það við hann. Það kom í ljós að það hafði skolast aðeins til hjá okkur í nefndaráliti að taka til greina athugasemdir, annars vegar frá Landsvirkjun og hins vegar frá Samtökum iðnaðarins. Og svo ég endurtaki þakkirnar þá vil ég þakka hv. framsögumanni nefndarinnar fyrir að hafa tekið tillit til þess og kallað málið aftur til nefndar. Þó að niðurstaðan hafi ekki verið sú hjá nefndinni að setja það inn sem breytingartillögu var hins vegar skerpt á því í nefndarálitinu, þ.e. mikilvægi þess að settur verði rammi um það í reglugerð frá ráðherra að tryggja að upplýsingar um starfsemi sjóðsins séu aðgengilegar.
Það er vissulega rétt sem fram kom við umfjöllun nefndarinnar að um sjóðinn og starfsemi hans er ávallt fjallað í sérkafla í ársskýrslu Orkustofnunar og er það vel. Ég held að það sé mikilvægt af því að Orkusjóður vinnur gríðarlega mikilvægt starf og við megum alveg vera montin af því. Þetta er flottur sjóður og starf hans er ekki eingöngu mikilvægt varðandi orkuskipti heldur líka t.d. jarðhitaleit. Nú er ég fædd og uppalin á Ísafirði þar sem — ég ætla að byrja þessa setningu aftur. Ég er ekki viss um að þeir sem fæddir eru og uppaldir í Reykjavík eða á Akureyri eða annars staðar þar sem er heitt vatn að finna, geri sér alveg grein fyrir hversu mikið gull heita vatnið er. Það umbreytir samfélögum að finna heitt vatn og það er gríðarlega mikilvægt fyrir samfélag að hafa aðgengi að heitu vatni, ekki bara til að synda í því heldur til að hita húsin okkar t.d. Þess vegna skipta hlutir eins og jarðhitalán Orkusjóðs, sem veitt eru sveitarfélögum, fyrirtækjum eða einstaklingum, alveg gríðarlega miklu máli því að ef heitt vatn finnst getur það umbylt skilyrðum fyrir búsetu fólks á þeim stað. Þegar menn hafa ekki aðgengi að heitu vatni þarf að nýta aðrar leiðir til þess að hita húsin, t.d. rafmagn eða annað, og það er töluvert miklu dýrara. Ég vildi vekja sérstaka athygli á þessu þar sem ég er fædd á Ísafirði, eins og ég sagði áðan, sem er einmitt á köldu svæði og þar sem nokkrum sinnum hefur verið farið í jarðhitaleit. Í síðustu leit fannst reyndar hiti en því miður hittu þeir ekki á vatn, sem þykir heppilegra að fari saman.
Orkusjóður veitir líka aðra styrki, oft til þessara svokölluðu köldu svæða, t.d. vegna varmadælna, eins og nefnt var hérna áðan. Hann veitir styrki til kaupa á varmadælum og sömuleiðis til bættrar einangrunar húsa. Allt þetta skiptir ótrúlega miklu máli fyrir þessi köldu svæði og þá sem búa þar. Stjórnvöldum ber náttúrlega að tryggja, og ekki síst okkur sem erum á löggjafarþinginu og förum bæði með löggjöfina og fjárveitingavaldið, að fólk geti búið þar sem það velur að búa og því sé ekki gert það erfiðara af því að svæðið er kalt.
Mig langaði að fjalla aðeins um innviði fyrir rafbíla og orkuskiptin. Það er gríðarlega mikilvægt að við höldum vel á spöðunum þar. Orkusjóður er staðsettur á Akureyri. Þótt ég hafi sagt það hálfpartinn í glensi áðan í andsvari við hv. þm. Smára McCarthy að sjóðurinn væri staðsettur á Akureyri, held ég að það sé alveg sérstaklega gott dæmi um hversu auðveldlega er hægt að staðsetja hlutina ekki alltaf í Reykjavík. Við höfum virkilega góða reynslu af því í þessu tilfelli. Þetta er sjóður sem veitir ráðgjöf og vinnur um land allt og ekki virðist staðsetningin hafa háð honum. Það hefur sömuleiðis verið áberandi hvernig þeir sem starfa hjá sjóðnum hafa verið mjög virkir í samfélagslegri umræðu um mikilvægi orkuskipta, um hleðslustöðvar og tækifærin sem felast í því. Ég vildi bara nýta tækifærið og vekja athygli á því.
En aftur að rafbílunum. Það hafa verið mjög athyglisverðar fréttir síðustu vikur í tengslum við uppbyggingu innviða fyrir rafbíla. Nú höfum við sannarlega stigið stór skref, skulum við segja, í uppbyggingu innviða fyrir rafbíla. Bæði höfum við byggt upp hleðslunet hringinn í kringum landið, sem er gríðarlega mikilvægt, og sömuleiðis höfum við veitt styrki til hótela og gististaða, sem einnig er mikilvægt og sérstaklega mikilvægur liður í því að við gerum bílaleigum kleift að skipta bílaflota sínum smátt og smátt út og vera með fleiri rafbíla þannig að það verði raunverulegur kostur fyrir ferðamenn og þá sem leigja bíla að leigja rafmagnsbíl og geta samt keyrt hringinn í kringum landið. Og svo ég nefni hv. þm. Smára McCarthy enn einu sinni þá benti hann í ræðu sinni áðan á þá jákvæðu staðreynd að almenningur taki þetta alvarlega. Við kaupum rafbíla og við tökum þátt í orkuskiptunum og leggjum þannig okkar af mörkum. En staðreyndin er sú, eins og hefur komið fram í fréttum síðustu vikna, að þrátt fyrir alla þá aukningu sem orðið hefur í uppbyggingu innviða rafbíla um landið, erum við nokkrum skrefum á eftir almenningi eins og gerist því miður stundum. Í fréttum er bent á að á fjölförnustu stöðunum, eins og t.d. í Staðarskála, í Borgarnesi, á Egilsstöðum, og fleiri fjölfarna staði mætti nefna, eins og marga staði á Suðurlandinu, sé einfaldlega kominn ákveðinn flöskuháls. Það eru of fáar hleðslustöðvar á þessum stöðum og fólk þarf að stoppa töluvert lengur en ella af því að það þarf að bíða eftir því að komast í hleðslustöð, það er einhver annar á undan að hlaða. Sá flöskuháls hefur áhrif. Hann hefur hreinlega letjandi áhrif á vilja fólks til þess að þora að treysta því að það geti keyrt um landið á rafmagnsbíl. Þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að við förum að setja meiri fjármuni í þetta. Vonandi kemur það með hinni nýju aðgerðaáætlun, þó að það komi ekki skýrt þar fram, en vonandi verða miklu meiri fjármunir settir í uppbyggingu innviða fyrir rafbíla.
Herra forseti. Ég nefndi í andsvari áðan möguleikann á því að raforkufyrirtækin gætu komið að þessu með öflugri hætti. Til þess þarf væntanlega lagabreytingu og það er mál sem ég hef verið að skoða og undirbúa og vonast til þess að geta lagt fram í haust. Þá verði fyrirtækjum eins og Rarik, sem er með spenna og tengivirki úti um allt land, falið að vinna gagngert að því að byggja upp stærri hleðslupunkta á þessum stóru stöðum þar sem mestu flöskuhálsarnir eru. Ég held að það sé leið sem er virkilega fær, eins og ég nefndi í ræðu í störfum þingsins í síðustu viku. Við myndum ekki endilega fela Rarik að reka þessar hleðslustöðvar sjálft heldur leggja til tengipunktinn, jafnvel malbika stæði, og síðan gætu aðrir aðilar komið að og sett upp sínar hleðslustöðvar. Þetta væri eins konar hvati til aðila að byggja upp fleiri hleðslustöðvar.
Önnur leið sem áhugavert væri að skoða er leið sem er farin í Þýskalandi, en þýska stjórnin skyldaði allar bensínstöðvar til þess að vera líka með hleðslustöðvar fyrir rafbíla. Það gæti líka verið leið. En í ljósi þess að við eigum öflug raforkufyrirtæki og öflugar dreifiveitur held ég að það sé alveg ástæða til að skoða hvort ekki sé hægt að nýta þau betur í þessu verkefni, eins og við höfum svo góða reynslu af varðandi ON, Orku náttúrunnar.
Herra forseti. Mig langar að nýta síðustu mínúturnar til að ræða um atriði sem ég kom aðeins inn á áðan í andsvari við hv. þm. Smára McCarthy, sem er sú staðreynd að þessi sjóður er að mörgu leyti sniðugur. Hann er sjálfur aðeins með u.þ.b. 25 millj. kr. til úthlutunar, sem er upphæð sem ég held að mætti tvímælalaust a.m.k. tvöfalda og helst auka umtalsvert meira en það. Sjóðurinn hefur nefnilega verið nýttur í alls konar sérverkefni líka, eins og t.d. uppbyggingu hleðslustöðva og bætta einangrun. Þetta virðist vera mjög heppilegur vettvangur til þess að úthluta fjármagni sem stjórnvöld ákveða að leggja í sérverkefni af því að sjóðurinn er sveigjanlegur og hefur sérþekkingu á orkuskiptum og í því að stuðla að bættri nýtingu orku. Ég held að það séu gríðarleg tækifæri fólgin í eflingu sjóðsins, sem ég tel að þetta mál feli í sér ef við fylgjum því eftir í fjárlögum og eflum sjóðinn. Ég vona að hv. þingmenn sem hér eru í fjárlaganefnd taki það til sín og skoði það í næstu fjárlagagerð að efla þennan sjóð umtalsvert. Við þurfum ekki alltaf að smíða ný apparöt og skipa nýjar nefndir til að úthluta fjármunum. Við getum nýtt okkur innviðina sem eru til staðar og nýtt þá í skýrari eftirfylgni með hverri ákvörðun.