150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

Orkusjóður.

639. mál
[15:29]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Þetta eru mikilvægar ábendingar og það er mjög mikilvægt að halda þessu sjónarhorni á lofti. Ég hefði reyndar viljað ganga lengra með eitt atriði sem er að krefjast fagþekkingar af a.m.k. einum stjórnarmanni, sem ég held að hefði gert málið sterkara. En gott og vel.

Hv. þingmaður talaði um hagsmunaárekstra og annað slíkt og ég held að það sé ákveðinn kostur að þessi leið sé farin, þ.e. að leita fagþekkingar eins og við á og sérstaklega innan Orkustofnunar þar sem eru þá ekki umsækjendur. Vonandi, ef okkur tekst að efla Orkusjóð og stækka hann, þá þýðir það líka, og með aukinni tækniþróun, að við förum að sjá stærri og fleiri og fjölbreyttari umsóknir og þá held ég að þessi leið sé kannski áhugaverð. (Forseti hringir.) En ég held að það sé líka nauðsynlegt að tryggja gegnsæi varðandi það (Forseti hringir.) hverjir veita ráðgjöf.