Orkusjóður.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttir fyrir andsvar hennar. Af því að hv. þingmaður nefndi 250 milljónir er rétt að taka fram að það er mismunandi á milli ára hversu háum upphæðum sjóðnum er falið að úthluta. Það gætu verið 250 millj. kr. á þessu ári og 10 millj. kr. á því næsta. Afsakið, herra forseti, eða milljarður svo að ég sé bjartsýn, kannski óhóflega bjartsýn. Ástæðan fyrir því að verið er að setja stjórn Orkusjóðs í staðinn fyrir ráðgjafarnefnd er, samkvæmt mínum skilningi, út af því að í raun snýst málið um að formfesta sjóðinn og gera hann sjálfstæðari. Þetta var einhvern veginn alltaf hálfgert skúffuverkefni og nú er þetta orðinn alvörusjóður með stjórn en ekki bara ráðgjafarnefnd.