Orkusjóður.
Herra forseti. Ég vildi bara rétt koma upp hér í umræðunni og benda á hvað hitaveituvæðingin hefur gefið landinu gríðarlega mikið á undanförnum árum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Þegar ég byrjaði fyrst að leigja á Akureyri árið 1991 man ég eftir að borga 113 kr. fyrir rúmmetrann. Talan er sú sama í dag. En ef við myndum reikna þetta upp í raunvirði í dag væru það um 400 kr. Hitaveita var mjög dýr á Akureyri fyrir 30 árum. Í dag er hún orðin jafnvel ódýrari en í Reykjavík eftir ákveðið vandamál í borginni undanfarin ár með rekstur hitaveitu. Þannig að þetta hefur breyst alveg gríðarlega. Fyrir 30 árum var hún margfalt dýrari en í höfuðborginni. Þannig að þetta er gríðarlega mikið. Hitaveitan á Íslandi er að spara okkur 100 milljarða á ári. Þarna fer í sjálfu sér fram auðsöfnun landsins.
Mig langar að spyrja út í glatvarma, út í nýtingu og frekari rannsóknir á glatvarma á Íslandi. Hvað sér hv. þingmaður fyrir sér í nýtingu á glatvarma í þessu samhengi?