Orkusjóður.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur fyrir mjög áhugaverða ræðu. Mig langar að ræða aðeins við hana. Í fyrsta lagi talar hún um það ákvæði í greinargerðinni að frumvarpið muni ekki fela í sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð. Hún talaði líka um gagnsæi. Ég hef verið að velta þessu tvennu fyrir mér í samhengi við frumvarpið vegna þess að eins og ég hef komist að þá eru misjöfn framlög í þennan sjóð og alls ekki skýrt hvað hann kostar á hverju ári. Það liggur ekki alveg ljóst fyrir. Þannig að ég velti fyrir mér: Hvað er eiginlega meint með þessari setningu, að frumvarpið muni ekki fela í sér aukinn kostnað þegar ríkisstjórnin leggur áherslu á aukin orkuskipti? Það hlýtur að kosta einhverja peninga. Er þá átt við að það kosti ekki meiri peninga fyrir ríkissjóð að reka þennan sjóð? Er það það sem verið er að vísa í? Mér finnst þetta mjög ógagnsætt orðalag. Ég veit ekki hvort það er til þess að haka í einhvers konar kreddubox að segja að þetta kosti ekki neitt og þess vegna sé því haldið fram. En það er ekkert sem styður það þannig séð. Mér finnst alla vega ekki gagnsætt hvað það þýðir.
Svo kom hv. þingmaður inn á fagmennsku við skipun þessarar stjórnar. Hún talaði um tilnefningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og eins frá náttúruverndarsamtökum. Þannig er t.d. fyrirkomulagið hjá loftslagssjóði, sem heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Þess vegna mætti líka spyrja: Af hverju ættum við ekki að taka fyrirkomulagið hjá loftslagssjóði okkur til fyrirmyndar á þessu málasviði? Þetta tvennt er mjög samtengt.