Orkusjóður.
Herra forseti. Já, ég myndi líka vilja segja í tengslum við þessa umræðu að almennt séð, varðandi það að hafa eins mikið uppi á borðum og hægt er varðandi kröfurnar og til hvers er ætlast, sé best að hafa leikreglurnar sem skýrastar á sama hátt og varðandi markmiðin að baki lagasetningu. Það held ég að komi að gagni varðandi þau sjónarmið sem hv. þingmaður rakti hér og sé til þess fallið að draga úr tortryggni. Við gætum snúið þessu við og horft á þetta með jákvæðari gleraugum og sagt að það sé til þess fallið að auka traust. Ég hefði líka haldið að það væri ráðherra á hverjum tíma í hag að það sæist að hverju væri stefnt, hverjar kröfurnar eru. Með því er hann líka varinn fyrir slíkri tortryggni og mögulegri gagnrýni.