150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

Orkusjóður.

639. mál
[16:12]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alltaf sama þemað, þegar nýir þingmenn koma inn á þing verða þeir hissa á því hvað það er í raun lítið sem fer í gegn. Án þess að maður vilji endilega tala niður hið þinglega ferli, sem er í öllum meginatriðum fínt, þá veltir maður fyrir sér hvort það sé eðlilegt eða ásættanlegt hversu lítið tillit er oft tekið til umsagna og hugmynda sem nefndinni berast, og oft lítið fjallað um það í nefndarálitum, eins og í þessu tilfelli, jafnvel þó að góð rök séu gegn málum. Ef það eru til góð rök gegn því að sjóðurinn taki það líka að sér að styðja við orkutengd verkefni sem tengjast náttúruvernd þá ætti að vera hægt að útskýra það í betra máli, myndi maður halda.

Ég hef svo sem ekki spurningu fyrir hv. þingmann. Ég velti þessu bara upp þar sem mér fannst svo áhugavert að heyra hv. þingmann fjalla um þessa hluti. En þetta eru hlutir sem mér finnst að ættu að hafa ríkari sess í umræðunni um málið.