150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

Orkusjóður.

639. mál
[16:32]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég kem hér upp til að taka undir með kollegum mínum. Þetta er orðið dálítið þreytt, asinn sem nú er á lokametrum þingsins. Verið er að flýta öllu svo ofboðslega mikið að ekki er einu sinni haft fyrir því að spyrja nefndarmenn hvort þeir samþykki að hafa fund á þingfundartíma, sem réttilega á að gera áður en fundarboð er sent. Hér er fólk á þingfundi að halda ræður, við stöndum hér og erum upptekin í umræðum og höfum ekki möguleika á því að fara á nefndarfund, hvað þá þegar fundarboð kemur með fimm mínútna fyrirvara. Ég taldi að forseti hefði talað skýrt í þessu efni en mögulega þarf að koma þessum skilaboðum betur til formanna. Þetta gengur ekki og það er alger óþarfi að búa til svona vesen og ósætti þegar einfaldlega er hægt að spyrja nefndarmenn hvort þeir samþykki að hafa fund á þingfundartíma. Ef svo er ekki þarf bara að biðja um frestun á þingfundi eða færa fund yfir á annan tíma.