150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

Orkusjóður.

639. mál
[16:36]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Aðeins áfram um stemninguna sem verið er að búa til hér í þinginu. Þessi gríðarlega mikilvægi fundur, sem boðað var til með fimm mínútna fyrirvara í umhverfis- og samgöngunefnd og ekki hlaust samþykki fyrir en var engu að síður haldinn, þrátt fyrir mótmæli, á þingfundartíma, snerist ekki um mikilvægt mál ríkisstjórnarinnar, snerist ekki um mikilvægt mál í þinglokasamningum flokka hér á Alþingi, heldur snerist hann um þingmannamál stjórnarþingmanns í umhverfis- og samgöngunefnd. Nú ætla ég ekki að standa hér og gera lítið úr þingmannamálum, en maður veltir fyrir sér hvort ríkisstjórnin hafi virkilega gaman af því að hleypa hér öllu upp í illindi. (Forseti hringir.) Hvers vegna fara þau fram með þessum hætti á sama tíma og verið er að reyna að ná samningum við stjórnarandstöðuna? Hvers vegna? (Forseti hringir.) Hvers vegna á þessum tímapunkti að hleypa hér öllu aftur í bál og brand? Þetta er orðin slík áhættuhegðun að maður er felmtri sleginn.