Orkusjóður.
Herra forseti. Ég hef alveg skilning á því að á lokasprettinum þurfi að vera ákveðinn sveigjanleiki, þar með talið í boðun nefndarfunda. En akkúrat þá ríður á að ákveðnar reglur gildi um hvernig boðað er til funda. Það er svolítið langt gengið að ætlast til þess eða ganga út frá því að við séum öll í stakk búin til að fylgjast með skilaboðum í símtækjum okkar þegar við stöndum jafnvel hér í ræðustól. Ég held að við hljótum að geta búið svo um hnútana að þegar svo mikið liggur við sé, annaðhvort með símtali eða beiðni um svör til baka, staðfest að allir hafi fengið skilaboðin og að þeir fái færi á að gefa þau svör.
Ég sit í umhverfis- og samgöngunefnd, samþykkti fundarboðið, mætti á fundinn, áttaði mig á að hv. þm. Björn Leví Gunnarsson var ekki þar, spurði um manninn og þá var farið og athugað. Einhvern veginn gekk ég þá út frá því, og verð bara eiga það við mig, (Forseti hringir.) að hann hefði gefið það frá sér að mæta, samþykkt fundinn en ekki mætt. Við hljótum að geta gert betur í þessu vegna þess að (Forseti hringir.) annað er einfaldlega ekki í boði.