150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

Orkusjóður.

639. mál
[17:28]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Við ræðum mikilvægt mál um Orkusjóð. Einna helst hefur borið á góma hér þá breytingu sem gera á á stjórn sjóðsins. Í stað ráðgjafarráðs svokallaðs skuli setja stjórn sjóðsins sem ekki er háð neins konar skilyrðum um faglega þekkingu eða hæfni og ekki er háð tilnefningu frá neinum öðrum en ráðherra. Þetta er talsvert annað verklag en notað er við loftslagssjóð sem er ekki síður mikilvægur sjóður á svipuðum stað í tilverunni, getum við sagt, og Orkusjóður. Ef við skoðum hvernig stjórn loftslagssjóðs er sett upp má sjá á heimasíðu sjóðsins að ráðherra skipar fimm fulltrúa í stjórn loftslagssjóðs til tveggja ára í senn. Formaður skal skipaður án tilnefningar og honum til viðbótar skipar ráðherra einn stjórnarfulltrúa án tilnefningar. Síðan er skipaður einn stjórnarfulltrúi, sem hefur þekkingu á loftslagsmálum, samkvæmt tilnefningu háskólasamfélagsins. Þarna er strax komin einn utanaðkomandi sem hefur faglega þekkingu til að liðsinna stjórninni. Þá er skipaður einn stjórnarfulltrúi samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins og að lokum einn stjórnarfulltrúi samkvæmt tilnefningu umhverfisverndarsamtaka. Hér er heildstæð stjórn fimm manna sem eru tilnefndir bæði af ráðherra og af hagsmunavörðum, hagsmunasamtökum. Stjórnin nýtur líka liðsinnis fagráðs sem er stærri hópur og gefur leiðbeiningar um hvernig skuli úthluta.

Mér finnst mikilvægt að faglega sé staðið að skipun í svona sjóði, bæði vegna þess að þeir gegna mikilvægu hlutverki og þeir eiga að útdeila fjármunum úr ríkissjóði. Þá skiptir máli að þessar ákvarðanir séu teknar á faglegum grunni. En þegar ég les í gegnum frumvarpið og sé að ráðherra skipar alla þrjá stjórnarmenn og ekki eru gerðar neinar kröfur um hæfni, þekkingu eða menntun, ekki neinar, þá hugsar maður auðvitað að þetta eigi að vera einhvers konar pólitísk nefnd til að auðvelda ráðherra að útdeila skúffufé, bara meira skúffufé en endilega gengur og gerist. Það er hægt að ákveða hversu mikið fer í þennan sjóð í gegnum fjárlög og svo er þriggja manna stjórn algjörlega undir stjórn ráðherra sem fer í að úthluta fénu á frekar óskýrum grunni.

Í 2. gr. frumvarpsins er skilgreint hlutverk Orkusjóðs. Tilgangurinn með þessu frumvarpi er að skýra betur hlutverk Orkusjóðs. Það stendur skýrt í greinargerðinni að tilgangurinn sé að ramma betur inn hlutverk sjóðsins. Þá sitja samt eftir þó nokkrar spurningar. Það stendur í 2. gr. frumvarpsins, með leyfi forseta:

„Hlutverk Orkusjóðs er að stuðla að hagkvæmri nýtingu orkuauðlinda landsins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða er miða að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og auka nýtingu á innlendum endurnýjanlegum orkugjöfum.

Orkusjóður styður jafnframt við verkefni sem stuðla að orkuöryggi og samkeppnishæfni á sviði orkumála og orkutengd verkefni á grundvelli orkustefnu, nýsköpunarstefnu, byggðastefnu og stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum.“

Gott og vel. Þetta eru ýmsar stefnur sem Orkusjóður á að styðja við. Þær eru ekki endilega alltaf samræmdar. Byggðastefna og stefna stjórnvalda í loftslagsmálum tala ekkert endilega alltaf saman og ekki heldur nýsköpunarstefna og stefna í loftslagsmálum. Það þarf að vera samhljómur í þessum stefnum og það er ekkert endilega gefið. Þá þarf ákveðna fagþekkingu til að meta áhrif hverrar aðgerðar fyrir sig á allar þessar stefnur. Ég hefði líka haldið að í stjórn sjóðsins ætti að veljast fólk í fremstu röð við orkunýtingu, fólk með góða fagþekkingu á sínu sviði, til þess að fjármunir ríkisins nýtist sem best í bestu verkefnin, hagnýtustu verkefnin, verkefnin sem eru líklegust til að skila okkur betri orkunýtingu og hraðari orkuskiptum. Þá þarf að vera þar fólk sem er inni í málunum, ekki bara fólk sem er ráðherra að skapi eða er tilbúið að vera kannski, eigum við að segja svolitlar já-manneskjur með því sem ráðherra vill gera hverju sinni, heldur fólk sem getur gefið faglegt álit á hverri tillögu fyrir sig og getur mótað störf sjóðsins á faglegum grunni.

Það skiptir gríðarlega miklu máli að við nýtum betur orkuauðlindir okkar, að við nýtum t.d. jarðhita miklu betur en við gerum nú. Þetta má t.d. gera með hagkvæmari eða betri uppbyggingu á húsnæði sem heldur betur hita. Ekki hefur verið lögð mikil áhersla á það í íslenskum byggingariðnaði að styrkja einangrun húsa þannig að minni hiti tapist. Það hefur ekki verið lögð nógu mikil áhersla á það. Það er ekkert gefið, ef ráðherra velur bara fólk sem er honum sammála, að nýjar og góðar lausnir finnist sem verði svo styrktar. Það er oft talað um að nýta betur rafmagn og gera átak í því að fólk noti minna rafmagn og fleira, en ekki er verið að skoða t.d. ný og betri hús og tækni sem gæti gert okkur kleift að nota helmingi minna af heitu vatni, jafnvel enn þá minna, og ná sömu þægindum. Það yrði alveg jafn notalega heitt heima hjá okkur, þessi frábæru lífsgæði sem við höfum að hlýtt sé heima hjá okkur og það séu ekki allir að krókna úr kulda á veturna eins og oft er í Evrópu þar sem margir eru að spara húsakyndingarkostnaðinn. Við þurfum ekki að búa við það hér á landi. Við höfum samt ekki lagt almennilega í það að þróa byggingariðnaðinn þannig að stefnt sé að betri jarðhitanýtingu í húsnæði. Sömuleiðis er búið að þróa tækni og búnað sem tryggir betri orkuskilvirkni, það hefur verið þróað áratugum saman víða í kringum okkur. Þess vegna er líka líklegt að slík tækni fáist á viðráðanlegu verði. Það er t.d. mikil þekking á þessu sviði í Þýskalandi. Þar veita stjórnvöld reglulega styrki til þessa málaflokks til að örva þróun á sviðinu til notenda, til nýsköpunar og til framleiðenda. Það þarf að gera þetta hérlendis líka varðandi jarðhitanýtingu og þá þarf ákveðna framsýni og það þarf sýn og skilning á málaflokknum til að geta farið af stað með það. Ekki myndi ég treysta mér til að gera það, enda hef ég hvorki menntun á því sviði né reynslu.

Mér finnst mjög mikilvægt að einmitt til þessara starfa veljist fólk sem hefur þessa þekkingu, færni og reynslu til að geta staðið fyrir frumkvöðlastarfsemi. Og akkúrat núna, þegar við horfum fram á loftslagsvá, þegar við sjáum hversu mikilvægt það er að nýta orkuna okkar vel og nýta hana líka til að minnka útblástur, er mikilvægt að fólk sem er mjög fært á sínu sviði móti stefnuna. Hér eru taldar upp fimm stefnur sem styrkveitingar úr Orkusjóði eiga að nýtast til þess að framkvæma. En það er engin forgangsröðun. Þetta er bara svona einhvern veginn. Ætli það sé þá ekki einmitt bara ráðherra sem ákveður hvað verður ofan á hverju sinni, hvernig sé best að nýta fjármagnið í ár. En það er kannski ekki gert út frá neinni sérstakri heildarframtíðarsýn, enda vitum við að oft hugsa ráðherrar svolítið í kjörtímabilum, hverju er hægt að ljúka á ásættanlegum tíma, t.d. einu ári. En við vitum að baráttan við loftslagsvána er miklu stærra og lengra verkefni sem þarf helst sýn þeirra sem bíða ekki eftir því að láta kjósa sig aftur eftir ár.

Við þurfum að stefna að tækniyfirfærslu og -aðlögun á kerfum hér á landi. Það er rosalega mikilvægt að auka orkuskilvirkni í jarðhitanýtingu vegna þess að eins og staðið er að jarðhitanýtingu akkúrat núna má segja að hún sé of ágeng. Það er ekki sama hvernig þetta er gert. Þess vegna er heldur ekki sama hvaða verkefni eru styrkt og hver ekki. Þess vegna þýðir ekki að setja fólk í þessa stjórn sem lætur jafnvel glepjast af flottri glærusýningu án þess að þekkja hvað liggi að baki og hvort það sem fólk er að leggja til sé í raun hagkvæmt og náttúruvænt.

Ég hef heyrt meiri hlutann bera það fyrir sig að stjórninni sé gert að leita sér faglegrar ráðgjafar hjá Orkustofnun, ef ég skil þetta rétt. Þess vegna þurfi ekki að skipa faglega í stjórninni. Ég skil ekki af hverju það ætti ekki að vera fagleg stjórn sem getur svo líka leitað sér faglegrar ráðgjafar. Af hverju ættum við að hafa ófaglega stjórn sem getur leitað sér ráðgjafar hjá Orkustofnun en ákveðið að vera bara ósammála henni og tekið ákvarðanir á ófaglegum grunni? Það er ekkert sem gerir þessari stjórn skylt að byggja ákvarðanir sínar um úthlutun úr sjóðnum á faglegum grunni, ekki neitt. Þetta er ákveðið áhyggjuefni.

Ég nefndi áðan loftslagssjóð og þótt ég hafi nefnt hann sem fyrirmynd í því hvernig stjórnin er skipuð þá vil ég líka nefna hann sem ákveðið víti til varnaðar. Í þessu frumvarpi um Orkusjóð stendur að þessar breytingar eigi ekki eftir að valda meiri kostnaði ríkissjóðs en samt stefnum við hraðbyri í átt að meiri orkuskiptum og betri orkunýtingu. Af hverju ætti það ekki einmitt að kosta meiri peninga en það hefur gert hingað til? Ef áherslan er á betri orkuskipti, meiri orkunýtingu o.s.frv. hvernig ættum við þá ekki einmitt að vilja eyða meiri peningum úr ríkissjóði til að standa betur að þessum málum?

En af því að ég nefndi loftslagssjóð, virðulegi forseti, þá var það árið 2012, að ég tel, sem loftslagssjóður var settur á laggirnar og ætlunin var að 50% allra kolefnisgjalda myndu renna í hann. Í Þýskalandi er fyrirkomulagið þannig að öll kolefnisgjöld renna í loftslagssjóð, loftslagsmál, skiljanlega, auðvitað. Við erum að borga fyrir að menga og þá ætti nota peningana sem við borgum fyrir að menga til að draga úr mengun og skaðseminni sem hún hefur í för með sér. En hér fékk það ekki lifa lengi. Þetta var afnumið með næstu ríkisstjórn, ríkisstjórn hæstv. fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, og þáverandi forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, núverandi hv. þingmanns. Þeir aftengdu þetta og settu loftslagssjóð á fjárlög. Það hafði heldur betur afleiðingar í för með sér. Við getum bara ímyndað okkur ef 50% allra kolefnisgjalda væru í sjóðnum — rentan af kolefnisgjöldum var um 6 milljarðar á síðasta ári og árið þar á undan — ef við hefðum 3 milljarða á ári í loftslagssjóði. En hvað er í sjóðnum núna? Það eru um 80 milljónir til úthlutunar. Spáið í hvað við höfum misst af stóru tækifæri og hvað við værum búin að ná miklum árangri ef við hefðum frá árinu 2012 látið að lágmarki 2 eða 3 milljarða renna í loftslagssjóð á ári.

Það er kannski líka stærsti gagnrýnispunkturinn við þetta frumvarp að Orkusjóður á einmitt að vera á fjárlögum, á að vera algerlega á hendi ráðherrans. Hann á ekki að vera faglega skipaður. Þetta er svo mikið metnaðarleysi. Þetta er svo mikil aftenging við það hversu áríðandi þetta er allt saman, orkuskiptin, loftslagsmálin. Spáið í hvað við ættum marga milljarða í loftslagssjóði núna ef þetta hefði ekki verið aftengt af fyrrverandi ríkisstjórn. Ekki er búið að laga það heldur í tíð þessarar ríkisstjórnar sem þó grobbar sig af því reglulega að enginn hafi gert jafn mikið í loftslagsmálum og hún. Hún hefur samt ekki metnaðinn í að setja helminginn, bara helminginn, af öllum kolefnisgjöldum í loftslagssjóð og loftslagstengd verkefni. Það er auðvitað frekar mikið metnaðarleysi.

Ég er ekki á móti frumvarpinu en mér finnst það sýna metnaðarleysi. Þetta á einhvern veginn að vera bara eftir einhverri hentisemi og það er allt of oft, herra forseti, sem hlutirnir ráðast af hentisemi í þessu húsi og ég er orðin þreytt á því.