150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

Orkusjóður.

639. mál
[20:32]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Tökum næsta skref upp á við. Þarna er undir, eins og hv. þingmaður nefnir, orkustefna, nýsköpunarstefna, byggðastefna og stefna stjórnvalda í loftslagsmálum. Þarna er pólitíkin. Þarna málar pólitíkin stóru myndina sem stjórnsýslan og sérfræðingarnir og fagaðilarnir raungera síðan. Og alltaf, í þeim tilvikum þegar um jafn góða kosti er að ræða, þá ratar það inn á pólitíska vettvanginn þegar allt kemur til alls. Verkefnið er augljóslega að nálgast þau markmið sem pólitíkin setur í þessum stóru stefnum sem snerta hlutverk sjóðsins. Það eru faglegu forsendurnar og verkefnin sem eru valin ná augljóslega þeim markmiðum. Það eru pólitísk afskipti af þessu en þau eru bara á réttum stað, í því að mála stóru myndina, halda stóru myndinni, en ekki að velja einstaka verkefni fyrir sérvalda aðila.