150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

Orkusjóður.

639. mál
[21:19]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti verður að gera athugasemd við að hv. þm. Björn Leví Gunnarsson er ekki klæddur í samræmi við það sem tilmæli eru um í þingsal. (BLG: Það má ekki opna glugga.)Forseti beinir þeim eindregnu tilmælum til hv. þingmanns að hann hugi að klæðaburði sínum. Mér finnst ekki við hæfi að menn gangi í ræðustól á Alþingi með þessum hætti.