150. löggjafarþing — 127. fundur,  25. júní 2020.

Orkusjóður.

639. mál
[22:35]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Í raun var ég kannski að hugsa þetta enn þá stærra. En ég ætla að byrja á að þakka kærlega fyrir trúnaðartraustið og ég hlýt að fagna því. En ég var kannski að horfa á þetta í stærra samhengi af því að þriðji orkupakkinn er ekki dæmi um mál sem er stórt, þriðji orkupakkinn er ekki dæmi um mál þar sem er verið að ræða einhverja heildarsýn eða stóra samhengið. Ég er einmitt að velta fyrir mér hvort — og kannski fór ég að einhverju leyti að velta því fyrir mér þegar ég hlýddi á andsvar hv. þm. Helga Hrafns Gunnarssonar — við ættum líka að ræða meira framtíðarsýn, hvert við ætlum að stefna, hvert við ætlum að fara, og síðan í smærra samhenginu hvernig við ætlum við að ná þangað. Þess vegna var ég að velta fyrir mér hvort við þyrftum stundum að taka umræðu um orkumál sem slík, ekki endilega í samhengi við einstök mál heldur bara í því samhengi, eða t.d. um menntamál eða heilbrigðismál, ekki í samhengi við lög um heilbrigðisþjónustu sem eru á dagskrá síðar hjá okkur heldur einmitt í þessu stóra samhengi: Hvernig viljum við hafa heilbrigðiskerfið á Íslandi? Í hvernig landi viljum við búa? Það sama á við um orkumálin: Hvernig viljum við nýta orkuna okkar? Hvernig viljum við forgangsraða o.s.frv.? Auðvitað kemur það inn í sumum stærri málum, eins og rammaáætlun og einhverju slíku. En stundum held ég að það væri allt í lagi að taka slíka umræðu utan sérstakra þingmála (Forseti hringir.) og ræða stóru myndina.