Orkusjóður.
Herra forseti. Við ræddum um þetta ágæta mál hér í þingsal í tíu klukkustundir, held ég, í gær. Þetta er mál sem tengist orkuskiptunum hinum síðari og ein meginbreytingin felst í breyttu hlutverki Orkusjóðs sem ekki verður lengur afmarkað við að styðja við verkefni sem draga úr nýtingu jarðefnaeldsneytis heldur einnig verkefni sem stuðla að orkuöryggi og samkeppnishæfni á sviði orkumála, og orkutengd verkefni í samræmi við áherslur og stefnumótun stjórnvalda. Hér er komið tæki stjórnvalda til að stuðla að öflugum orkuskiptum á næstu árum í landinu.