150. löggjafarþing — 128. fundur,  26. júní 2020.

Orkusjóður.

639. mál
[10:37]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Tilgangur laganna og markmiðið er mjög gott. Með því að fara í þessi orkuskipti minnkar notkun jarðefnaeldsneytis en eykur notkun innlendra endurnýjanlegra orkugjafa og orkuöryggi. Aukið samkeppnisforskot Íslands verður hvað varðar orkumálin, horft er til loftslagsstefnunnar og horft er til sveitarstjórnarstefnunnar, ég man ekki í svipinn hinar stefnurnar, jú það er nýsköpunarstefnan og einhver ein önnur, þannig að þetta er mjög víðfeðmt. Tilgangurinn er góður.

Það sem við höfum gagnrýnt er eitt atriði. Ráðherra leggur fram lagafrumvarp, og lögin koma hingað, um hvernig skuli hafa þetta, ráðherra skipar alla þrjá aðilana, en reglugerðin er um það hvernig skuli úthluta úr sjóðnum, við hverja skuli hafa samráð, sem er bara Orkustofnun, og mögulega einhverja aðra aðila ef tilefni er til, versus það sem er gert annars staðar, t.d. hjá Tækniþróunarsjóði. Það verður að hafa aðkomu miklu fleiri aðila.

Ég ræddi við ráðherra í gær um þetta og núna rétt áðan, að ráðherra hafi mögulega einhverja leið, fyrst nefndin ákvað að fara ekki þá leið að gera þetta í lögum, að þá væri hægt að gera það í reglugerð (Forseti hringir.) að hafa faglegra samráðsferli og skjóta loku að einhverju leyti fyrir freistnivanda. (Forseti hringir.) En ráðherra gæti nefnt þau áform hér í atkvæðagreiðslunni.