hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til töluverðar breytingar á frumvarpinu og leggur áherslu á að halda í það efni frumvarpsins sem snýr að því að einfalda og skýra viðfangsefnið en vísar öðru til heildarendurskoðunar á lögunum, sem nú stendur yfir, með áherslu á að eftirlit fari fram sem næst starfsemi hverju sinni. Og að miðlæg stjórnvöld, sem sagt stofnanir ríkisins, hugi að samræmingu og veiti nærstjórnvöldum stuðning og leiðsögn þar sem á þarf að halda og að lögð verði aukin áhersla á rafræna stjórnsýslu til að tryggja samræmi í þjónustunni og eftirlitinu um allt land.