samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir.
Virðulegi forseti. Ráðuneytið sagði við okkur í nefndinni að valin hefðu verið heppileg verkefni í þessa hugmyndafræði, þessi PPP-verkefni, einka- og opinbera framkvæmd. Á sama tíma er okkur líka sagt að kostnaður við slík verkefni sé 20–30% hærri. Segjum sem svo að við værum með einhverja almennilega forgangsröðun á verkefnum sem er ekki búið að ákveða í samgönguáætlun. Það er forgangsröðun eftir því hvaða verkefni eru arðbærust og samfélagslega hagkvæmust o.s.frv. Ef við værum með slíka forgangsröðun værum við augljóslega að segja að þau verkefni væru þau sem eru greidd af sköttum o.s.frv. og eru arðbær notkun á almannafé. Og hvað segir að þessi verkefni séu ekki nákvæmlega þar stödd og af hverju ætti þá að vera að taka verkefnin sem eru arðbær og hagkvæm fyrir samfélagið og rukka 20–30% aukalega fyrir þau?