framhald þingstarfa.
Herra forseti. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kemur hingað upp og gerir að umtalsefni samkomulag formanna flokka. Hv. þingmanni er jafn kunnugt um það og þeirri sem hér stendur að það samkomulag byggðist á því að samkomulag næðist um þau mál sem lokið yrði á þessu þingi. Það samkomulag hefur enn ekki náðst, því miður. Ég ítreka það sem ég hef áður sagt við formenn flokka: Ég taldi að við værum öll að fallast á þennan tímaramma af fullum heilindum í því markmiði að ná saman um þau mál sem yrði lokið. Það hefur tekið tímann sinn að ná saman um þau mál. Það hefur þó aðeins þokast, eins og hv. þingmaður þekkir mjög vel, en enn liggur ekki fyrir samkomulag við alla flokka á Alþingi um það hvernig málum skuli nákvæmlega lokið. Allir hv. þingmenn sem skrifuðu undir samkomulagið ættu að hafa skilning á því að það hangir á því að við náum saman um endanlegan málalista og afgreiðslu þeirra mála.