framhald þingstarfa.
Herra forseti. Í fyrsta lagi er afar sérstakt að heyra það hér á göngum Alþingis að verið sé að skipuleggja þingstörf fram í tímann án þess að það sé rætt við þingflokksformenn, formenn stjórnmálaflokkanna eða eitthvað slíkt. Það finnst mér mjög sérstakt. Ég hélt að það væri kannski í samræmi við hefðina að þetta ætti alla vega að ræða á þeim vettvangi.
Síðan vil ég segja það, herra forseti, að í þessu undirritaða samkomulagi er ekki orð um að klára þurfi einhvern ákveðinn fjölda mála eða eitthvað slíkt áður en þingi er slitið. Það er ekki orð um það í þessu samkomulagi, þannig að það sé skýrt tekið fram. Ég reikna bara með að menn virði þetta samkomulag.