150. löggjafarþing — 128. fundur,  26. júní 2020.

framhald þingstarfa.

[13:35]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Mig langar bara til að taka undir og benda á að þegar kemur að því að ná samkomulagi um að ljúka þingi núna þá er ég búin að bíða síðan í gærkvöldi eftir að forsætisráðherra hreinlega hringi í mig eða biðji um fund og haldi áfram samtali við okkur Pírata um okkar mál og það sem við höfum beðið um til að ljúka þessu. (Forseti hringir.) Það stendur ekki á okkur. Það eru tveir í samtalinu og ríkisstjórnin þarf líka að hafa samband við okkur og sýna vilja til að ljúka þessu.