framhald þingstarfa.
Herra forseti. Í ljósi þess hvernig þessi umræða byrjaði væri kannski rétt að huga að því og jafnvel að beina þeirri spurningu til hv. formanns Miðflokksins hvort hann hafi litið svo á að þegar formenn flokkanna skrifuðu undir samkomulag sitt gæfi það honum tækifæri til þess að stöðva með málþófi framgang allra mála ríkisstjórnarinnar, með því að fara dag eftir dag, viku eftir viku, í málþóf út af einu máli. Hvarflar virkilega að mönnum að það hafi verið tilgangurinn þegar formenn flokkanna gerðu sitt samkomulag?