150. löggjafarþing — 128. fundur,  26. júní 2020.

framhald þingstarfa.

[13:38]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Herra forseti. Ég hef ekkert út á fundarstjórn forseta að setja. Það er sennilega algerlega tilgangslaust að biðja fólk í þessum sal að reyna að sjá örlítið út fyrir eigin nafla, stóru myndina, sjá hvaða mál það eru sem væri gott að Alþingi kláraði núna. Það væri gott að við færum inn í sumarið með samgöngumálin, það risastóra mál, orðin að lögum. Ég ætla engu að síður, forseti, og geri tilraun til þess, að biðja fólk sem er í einhverju öðru samkomulagi, horfir á eitthvað annað af því að þar er ekki nákvæmlega allt sem það telur að það eigi að fá þar, að prófa með mér í það minnsta að reyna að sjá stóru myndina hvað það varðar og hugsa aðeins um þessa fundarstjórn hér og hvernig staðan er í raun, hvað getur gerst varðandi stór mál sem ég veit að við viljum mörg hér inni að verði að lögum.