150. löggjafarþing — 128. fundur,  26. júní 2020.

framhald þingstarfa.

[13:40]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég held að það væri afskaplega gott fyrir sjálfsmynd Alþingis og mögulega ásýnd þess að fólk, sem er í meira mæli en oft áður að ferðast innan lands og hlusta á okkur í útvarpi, myndi muna okkur fyrir annað en að standa og deila um klæðaburð hvert annars eða með hvaða hætti einn eða annar gengur á svig við eitthvert samkomulag. Það er nauðsynlegt að ná samkomulagi þar sem allir geta gengið nokkuð ánægðir frá borði. Til þess eigum við að tala saman en við þurfum ekkert endilega að gera það hér og ekki í skeytasendingum. Ég hvet því þingmenn allra stjórnmálaflokka hér inni til að eiga samræður fyrir utan (Forseti hringir.) þennan sal og ná samkomulagi sem fyrst.