150. löggjafarþing — 128. fundur,  26. júní 2020.

framhald þingstarfa.

[13:43]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég kem hingað upp til að deila áhyggjum af því á hvaða vegferð við erum almennt og kannski til að leggja til lausn. Ég er mögulega of sein núna en hún gæti verið höfð í huga næst. Þetta er lausnaverklagið sem þekkist í raunheimum, þ.e. að þegar margir aðilar koma að borðinu, þegar verið er að tala við fleiri en einn aðila í einu, sé það ekki þannig að ágreiningsmál við einn aðila séu kláruð og ekki fyrr en þá byrjað á samtalinu við þann næsta. Það er ávísun á svona stöðu. Af því að það lá fyrir frá upphafi, og hefur eiginlega legið fyrir frá fyrsta degi þessarar ríkisstjórnar, að stjórnarandstöðuflokkarnir eru fimm hefði verið hægt að eiga samtal við þá alla nokkurn veginn í einu um helstu áhersluatriði sem hver flokkur setti á borðið. Þá værum við ólíklega í þessari stöðu núna, þ.e. að renna út á tíma. Það er mjög slæmt. Ég legg til að við klárum þetta eins vel og við getum og leggjum svo töluverða vinnu saman í það að koma í veg fyrir að slík staða komi upp aftur.