150. löggjafarþing — 128. fundur,  26. júní 2020.

framhald þingstarfa.

[13:45]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegur forseti. Mig langaði bara að bæta því við, af því að tími minn var búinn áðan, að við erum með mál númer tvö í röðinni. Það kostar ekki eina einustu krónu, ekki eina krónu. Það lýtur að því að bjóða öryrkjum að fara út að vinna og gefa þeim færi á því að reyna að vinna og afla tekna, borga skatta og kannski að lenda ekki inni í örorkukerfinu aftur. Það kostar ekki eina krónu. Við erum búin að bjóða okkar samningsaðilum að velja á milli þessara tveggja mála, hvort heldur sem er. Við erum til í það. Það eina sem við biðjum um, og við öll í stjórnarandstöðunni biðjum um, er sanngirni og réttlæti, að fá eitt einasta mál inn í þingsal í atkvæðagreiðslu, eitt einasta mögulega mál. Og hvað skyldi vera svona rosalega erfitt við það? Mér er bara algjörlega fyrirmunað að skilja hvernig samningssamband á að gilda bara allt í aðra áttina og annar samningsaðilinn á alltaf að vera með ennið í jörðinni og biðja um grið og segja allt í lagi, takk fyrir, við látum okkur þetta nægja. Svona ganga ekki (Forseti hringir.) samningar fyrir sig, virðulegi forseti.