150. löggjafarþing — 128. fundur,  26. júní 2020.

framhald þingstarfa.

[13:49]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Það er sagt að það sé leiðinlegt að ræða þetta fyrir framan þjóðina, en það er hluti af vandamálinu að eina tæki minni hlutans til að hafa einhver áhrif á annars algjört vald meiri hlutans er tíminn hér í ræðupúltinu. Hluti af stjórn meiri hlutans hefur alltaf verið, ekki bara þessa meiri hluti, að keyra einfaldlega áfram með mál. Eina leiðin fyrir minni hlutann er að mæta í ræðustól til að segja: Fyrirgefið, þið verðið að taka smátillit til okkar. Þetta er eina tækið. Það er enginn málskotsréttur eða neitt. Ástæðan fyrir því að verið er að ræða þetta í ræðustól er sú að meiri hlutinn hverju sinni vill ekki klára samningaviðræður og finnst það stundum þægilegt að það sé einhver orðrómur um að málþóf sé í gangi o.s.frv., þegar það er einfaldlega (Forseti hringir.) ekki vilji til þess að klára samningaviðræður, ekki vilji til þess að taka tillit til fullt af þingmannamálum, (Forseti hringir.) þó að í gildi sé samkomulag að greiða eigi fyrir þingmannamálum á þessu þingi. Það varð ekkert af því.