framhald þingstarfa.
Virðulegur forseti. Þetta er eiginlega alveg stórfurðulegt. Hvað erum við búin að halda marga fundi, störufundi, til að reyna að leysa þessi mál? Ef vinnubrögðin væru í fyrirtæki úti í bæ eins og þau hafa verið á þessum störufundum sem hafa verið haldnir, væri það farið á hausinn. Við erum búin að fá öll tækifæri til að leysa þetta. Svo koma stjórnarþingmenn hér upp og segja að það sé okkur í Flokki fólksins að kenna að stjórnarþingmenn fái ekki sín mál inn í þingið. Hversu langt er hægt að seilast? Hvernig í ósköpunum getur það verið Flokki fólksins að kenna að stjórnarmenn komi ekki málum sínum inn í þingið? Það er útilokað.